Miðflokkurinn auglýsti í Morgunblaðinu eftir reynslusögum frá almenningi sem lent hefur „í kerfinu“. Auglýsingin var liður í þeirri stefnu flokksins að gera það að forgangsverkefni sínu að takast á við báknið sem hefur blásið út á undanförnum árum og er enn að stækka. Auglýsingin er svohljóðandi:
Miðflokkurinn hyggst gera það að forgangsverkefni að takast á við „báknið”. Við biðlum nú til almennings að hjálpa okkur við þetta verkefni. Hefur þú lent í „kerfinu“? Hefur þú mætt óbilgirni af hálfu hins opinbera? Hefur þú upplifað óeðlilegar hindranir stjórnkerfisins við stofnun eða rekstur fyrirtækis eða í daglegu lífi? Nú er bein útsending frá flokksráðsfundi flokksins
https://www.facebook.com/midflokkur/videos/695894047566783/