• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hærri tollar: hærra matarverð, aukin verðbólga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. desember 2020
in Neytendur
A A
0

 

Neytendasamtökin mótmæla harðlega áformum stjórnvalda sem birtast í framkomnu frumvarpi um úthlutun tollkvóta. Hverfa á frá rúmlega ársgömlu fyrirkomulagi svokallaðs jafnvægisútboðs og tekið upp á ný aflagt dýrara útboðskerfi. Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu er það lagt fram til að mæta tekjutapi matvælaframleiðenda vegna minnkandi eftirspurnar í kórónaveirufaraldrinum.

Þannig á enn á ný að seilast í vasa neytenda til að mæta skakkaföllum vegna faraldursins. Að þessu sinni mun matvælaverð hækka og þar með verðbólga aukast. Neytendasamtökin leggjast af fullum þunga gegn því að matvælaverð verði hækkað enn frekar á Íslandi. Nógu hátt er það nú samt. Það verður að leggja af þá lensku að fyrsta hugmynd sem komi upp þegar eitthvað bjátar á sé að seilast í vasa neytenda. Í grein sem birtist i Morgunblaðinu 23. nóvember sl. (og sjá má hér) benda formaður og framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna á leiðir til að styðja við bændur án þess að hækka þurfi matvælaverð.

Tollar og verndarhyggja eru hamlandi stuðningur sem til leiða til taps neytenda og framleiðenda þegar litið er til lengri tíma. Þessi hamlandi stuðningur er hluti af gamalli og hverfandi arfleifð sem verður að láta af. Þess í stað þarf að leggja áherslu á styðjandi stuðning, stuðning við nýsköpun og beinan stuðning við bændur. Íslenskir bændur og aðrir matvælaframleiðendur hafa sýnt að þeim er heilt yfir er treystandi til að framleiða holl og góð matvæli. Matvælaframleiðendur verða að treysta eigin framleiðslu. Treysta verður neytendum til að velja, en láta af kröfum um tollmúra og neyslustýringu.

Umræða
Share78Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?