• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland setur 90 milljónir í Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. desember 2020
in Erlent, Fréttir
A A
0

 

Ísland mun veita 90 milljónum króna til Neyðarsjóðs Sameinuðu þjóðanna (CERF). Þetta tilkynnti Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, á framlagaráðstefnu sjóðsins í dag. 

Samkvæmt yfirlitsskýrslu fyrir 2021 sem Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) kynnti í síðustu viku mun þörfin fyrir mannúðaraðstoð aukast um 40% milli ára vegna óbeinna áhrifa af völdum COVID-19. Í einföldu máli má hugsa sér að ef allir þeir sem áætlað er að þurfi á mannúðaraðstoð og vernd að halda á næsta ári byggju í einu landi, væri það land það fimmta fjölmennasta í heiminum.

Í ræðu sinni á ráðstefnunni lagði Martin áherslu á mikilvægi þess að konur og stúlkur séu í forgrunni í allri mannúðaraðstoð. „Við getum ekki horft framhjá þeirri staðreynd að í neyðaraðstæðum, þegar fátækt og hungur eykst, eru konur og stúlkur sérstaklega berskjaldaðar fyrir ofbeldi og annarri misnotkun. COVID-19 heimsfaraldurinn hefur síðan gert ástandið enn verra,“ sagði Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri á ráðstefnunni.

40 milljóna króna viðbótarframlag

Í þróunarsamvinnustefnu Íslands er lögð áhersla á fyrirsjáanleg framlög til mannúðaraðstoðar. Í samræmi við þá áherslu endurnýjaði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra rammasamning við CERF fyrir tímabilið 2020-2023 en ársframlög Íslands til sjóðsins nema 50 milljónum króna á ári. Heildarframlag Íslands á framlagaráðstefnu CERF fyrir 2021 felur því í sér 50 milljón króna framlag samkvæmt rammasamningi ásamt 40 milljón króna viðbótarframlagi fyrir yfirstandandi ár.  CERF, sem  er sérstakur sjóður undir OCHA, eykur viðbragðsflýti stofnana Sameinuðu þjóðanna og beinir sjónum að undirfjármögnuðum og gleymdum neyðarsvæðum. Á síðasta ári veitti CERF fjármagn til stofnana sem aðstoðuðu rúmlega 29 milljón manns í 52 löndum og svæðum. Á þessu ári hefur CERF úthlutað rúma 15 milljarða króna til að takast á við áhrif heimsfaraldursins í 52 löndum.

Frá því að sjóðurinn var settur á laggirnar 2006 hefur mannúðarþörf í heiminum aukist margfalt. Þeim sem þurfa á mannúðaraðstoð og vernd að halda hefur fjölgað úr 32 milljónum manns árið 2006 í 260 milljón manns árið 2020, samkvæmt mati Sameinuðu þjóðanna.

https://gamli.frettatiminn.is/05/12/2020/rikisstjornin-hundsar-atvinnulausa-sem-betla-mat/

Umræða
Share24Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?