Baldur Borgþórsson gekk í Sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa yfirgefið Miðflokkinn eins og fram hefur komið nýlega, hann tilkynnti um breytinguna í dag. Hann mun þó áfram starfa sem fulltrúi Miðflokksins í borgarstjórn út kjörtímabilið.
Áður hafði Birgir Þórarinsson einnig yfirgefið Miðflokkinn og gengið í Sjálfstæðisflokkinn. Hér að neðan er hægt að lesa yfirlýsingu Baldurs Borgþórssonar :
Valhöll
Það er mér sönn ánægja að tilkynna að í dag lagði ég leið mína í Valhöll og skráði mig í Sjálfstæðisflokkinn.
Þar var mér vel tekið og er ég þakklátur fyrir það.
Eins og flestum er kunnugt hef ég allt frá upphafi kjörtímabils átt afar gott samstarf við Eyþór Laxdal Arnalds, oddvita Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, og hans góða fólk sem hefur í hvívetna verið málefnalegt í sínum störfum og sýnt af sér framkomu sem sómi er að.
Því ættu þessi tíðindi ekki að koma neinum á óvart.
Það var sannarlega góð tilfinning að ganga inn í Valhöll á ný og rifjuðust upp góðar minningar frá fyrri tíð og meðal annarra æskuminningar úr sumarferðum Varðar sem ávallt voru mikið tilhlökkunarefni.
Ég ítreka fyrri yfirlýsingu mína þess efnis að ég mun standa við kjör mitt með framboði M-lista og sitja áfram sem fyrsti varamaður framboðsins í borgarstjórn Reykjavíkur til loka yfirstandandi kjörtímabils.
Sveitarstjórnarmenn eru sjálfstæðir í störfum sínum og ég hyggst rækja skyldur mínar gagnvart kjósendum mínum af sömu heilindum og einlægni og ég hef gert frá upphafi.
Ég vill að lokum þakka góðum vinum í Miðflokknum samfylgdina og óska þeim alls hins besta.
Með vinsemd og virðingu, Baldur Borgþórsson Varaborgarfulltrúi