• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hagnaður Arion banka nam 28.6 milljörðum króna

Árið var metár í íbúðalánum en bankinn lánaði alls 211 milljarða króna í íbúðalán og óx íbúðalánasafn bankans um 85 milljarða króna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. febrúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Hagnaður Arion banka nam 6.522 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi og 28.615 milljónum króna á árinu. Arðsemi eiginfjár var 13,4% á fjórðungnum og 14,7% á árinu. Heildareignir námu 1.314 milljörðum króna í árslok, samanborið við 1.173 milljarða króna í árslok 2020. Lán til viðskiptavina jukust um 13,8% frá áramótum en íbúðalán hækkuðu um 22,6% á sama tíma og lán til fyrirtækja jukust um 5,2%, einkum á fjórða ársfjórðungi.

Lausafé jókst um 9,9% þrátt fyrir endurkaup á hlutabréfum bankans og arðgreiðslu fyrir samtals 31,5 milljarð króna á árinu 2021. Á skuldahliðinni jukust innlán um 15,3% á árinu og lántaka jókst um 19,3%, aðallega vegna útgáfu á grænum skuldabréfum og sértryggðum skuldabréfum í evrum. Heildar eigið fé nam 195 milljörðum króna í árslok og kom afkoma tímabilsins til hækkunar en til lækkunar komu arðgreiðslur og endurkaup á hlutabréfum bankans.

Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 23,8% í árslok og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,6% að teknu tilliti til væntrar arðgreiðslu að fjárhæð 22,5 milljarðar króna og 4,3 milljarða króna eftirstöðva á gildandi endurkaupaáætlun sem byggir á heimild Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands frá því í október. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

  • Hagnaður Arion banka á 4F 2021 var 6.522 milljónir króna
  • Arðsemi eiginfjár á fjórðungnum var 13,4% samanborið við 11,8% á 4F 2020
  • Hreinn vaxtamunur var 2,8%, samanborið við 2,9% á 4F 2020
  • Sjötti ársfjórðungurinn í röð sem hreinar þóknanatekjur aukast
  • Tekjur af kjarnastarfsemi jukust um 14,8% samanborið við 4F 2020
  • Kostnaðarhlutfallið á fjórðungnum var 51,6% samanborið við 44,9% á 4F 2020
  • Gjaldfærðir voru 1,5 milljarðar króna á fjórðungnum vegna kaupaukakerfis byggt á árangursmælikvörðum í árslok en þar á meðal er mælikvarðinn um að vera með hærri arðsemi en helstu keppinautar að meðaltali
  • Heildareignir bankans jukust um 12,0% frá árslokum 2020
  • Arðgreiðsla og endurkaup á hlutabréfum bankans námu 31,5 milljörðum króna á árinu
  • Eiginfjárhlutfall bankans var 23,8% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,6% þann 31. desember 2021, að teknu tilliti til arðgreiðslutillögu stjórnar upp á 15 krónur á hlut sem samsvarar 22,5 milljörðum króna, og 4,3 milljarða króna útstandandi endurkaupa í árslok. Arðgreiðsluhlutfallið er 79%
  • Arion banki er í mjög góðri stöðu til að lækka eigið fé með útgreiðslum og mæta eftirspurn viðskiptavina eftir lánsfé
  • Þann 1. júlí 2021 náðust samningar um sölu Arion banka á Valitor hf. sem háð er samþykki Samkeppniseftirlitsins

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Starfsemi Arion banka gekk vel á árinu 2021 þrátt fyrir að heimsfaraldur og samkomutakmarkanir hafi sett mark sitt á árið. Bankinn náði öllum sínum rekstrarmarkmiðum og vann að fjölmörgum spennandi verkefnum með viðskiptavinum sínum. Efnahagur bankans er áfram sterkur og eiginfjárhlutfall 23,8%. Hlutfall eiginfjár þáttar 1 var í árslok 19,6%, þrátt fyrir endurkaup og arðgreiðslu á árinu, en markmið bankans er að hlutfallið sé 17% og eru tillögur stjórnar bankans um arðgreiðslur á árinu 2022 skref í áttina að því markmiði og í takt við arðgreiðslustefnu bankans. Í árslok áttu íslenskir lífeyrissjóðir tæplega 47% hlutafjár í Arion banka og voru rúmlega 90% hluthafa íslenskir. Fjöldi hluthafa í árslok var um 11.300 og fjölgaði um meira en 50% á árinu.

Við leggjum okkur fram um að vera góður samstarfsaðili og stuðla að sameiginlegum árangri okkar og viðskiptavina okkar. Á þessu ári unnum við með fjölda fyrirtækja að spennandi verkefnum eins og útboð Arctic Fish, Play, Íslandsbanka og Solid Clouds eru góð dæmi um. Einnig kom bankinn að lána- og ráðgjafarverkefnum stórra fyrirtækja í lyfja-, smásölu-, fjarskipta- og byggingargeirunum.

Árið var metár í íbúðalánum en bankinn lánaði alls 211 milljarða króna í íbúðalán og óx íbúðalánasafn bankans um 85 milljarða króna. Þær eignir sem viðskiptavinir okkar hafa falið okkur að stýra fyrir sína hönd jukust um rétt tæp 20% og námu í árslok 1.352 milljörðum króna. Arion banki var að auki með hæstu hlutdeild í miðlun hlutabréfa í kauphöll sjötta árið í röð.

Bankar gegna mikilvægu hlutverki í hverju samfélagi með því að fjármagna þau verkefni sem fyrirtæki, fjárfestar og heimili vilja ráðast í. Í takt við umhverfis- og loftlagsstefnu bankans leggjum við sérstaka áherslu á græn fjármál og gaf bankinn á árinu út sína fyrstu heilstæðu grænu fjármálaumgjörð sem nær bæði til útlána bankans og fjármögnunar. Í kjölfarið gaf bankinn út græn skuldabréf, bæði í íslenskum krónum og evrum, fyrir alls um 48 milljarða króna. Fyrsta nýja græna lánið sem bankinn veitti undir fjármálaumgjörðinni nam um 16 milljörðum og snéri að fjárfestingu Norðuráls í nýrri framleiðslulínu sem mun draga verulega úr orkunotkun í framleiðslu á álstöngum og hefur mun lægra kolefnisspor en ef framleiðslan færi fram erlendis.

Við höfum haft forystu hér á landi á sviði stafrænnar fjármálaþjónustu. Á árinu bættum við hlutabréfa- og sjóðaviðskiptum í Arion appið og fjöldi viðskipta með hlutabréf í gegnum netbanka og app meira en þrefaldaðist frá fyrra ári. Lífeyrismálin í appinu halda áfram að vekja lukku og hefur sala lífeyrissamninga og flutningar á inneign aukist til muna. Við sjáum af þessum tveimur nýjungum hversu vel viðskiptavinir okkar kunna að meta það þegar við einföldum þjónustu sem í hugum margra er flókin og fjarlæg.

Á árinu hefur samstarf Arion banka og Varðar, dótturfélags bankans, aukist til muna. Samstarfið snýr ekki síst að sölumálum og rekstri innviða og hefur Vörður flutt starfsemi sína í höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19. Hinar öflugu stafrænu sölu- og þjónustuleiðir okkar munu gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi félaganna. Jafnframt eykur samstarfið fjölbreytni þeirrar fjármálaþjónustu sem viðskiptavinir geta sótt til Arion banka en óhætt er að segja að Arion banki sé það fjármálafyrirtæki á Íslandi í dag sem býður hvað fjölbreyttustu fjármálaþjónustuna í gegnum fjölbreyttar og nútímalegar þjónustuleiðir.“

 

Umræða
Share16Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    215 deilingar
    Share 86 Tweet 54
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?