Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Nina muldum melónufræjum vegna aðskotarefna sem Fiska.is flytur inn og selur í sinni verslun. Fyrirtækið hefur í samráð við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF) innkallað vöruna.
Tilkynningin barst fyrst til Matvælastofnunar í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættulegt matvæli og fóður á markaði.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Nina international
- Vöruheiti: Ground Egushi 227 gr
- Best fyrir: 1.1.2024
- Nettómagn: 227 g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Nina International, 3717 West St, Landover, MD 20785, Bandaríkin
- Framleiðsluland: Ghana
- Innflytjandi: Fiska.is Nýbýlavegi 6 200 Kópavogur
Neytendum sem keypt hafa vöruna er ráðlagt að neyta hennar ekki, farga eða skila henni í verslun Fiska.is og fá endurgreitt.
Ítarefni:
- Fréttatilkynning Fiska.is
- Fréttatilkynning heilbrigðiseftirlitsins HEF
- Innkallanir á heimasíðu Matvælastofnunar
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook
Umræða