• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Austan og norðaustan stormur eða rok – Appelsínugult ástand

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Suðurland – Austan og norðaustan stormur eða rok (Appelsínugult ástand)

11 mar. kl. 14:00 – 12 mar. kl. 12:00 – Austan og síðar norðaustan stormur eða rok, 20-28 m/s en jafnvel allt að 30 m/s seint um kvöldið. Búast má við snörpum viðndhviðum við fjöll, yfir 40 m/s, einkum undir Eyjafjöllum og Mýrdalsjökli. Samgöngutruflanir líklegar og ekkert ferðaveður meðan viðvörunin er í gildi. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausamunum til að forðast foktjón.

Suðausturland – Austan eða norðaustan stormur eða rok (Appelsínugult ástand)

11 mar. kl. 16:00 – 12 mar. kl. 11:00 – Austan og síðar norðaustan stormur eða rok, 20-28 m/s en allt að 30 m/s í meðalvindhraða seint um kvöldið. Búast má við snörpum viðndhviðum við fjöll, yfir 40 m/s, einkum undir Mýrdalsjökli og í Öræfum. Samgöngutruflanir líklegar og ekkert ferðaveður meðan viðvörunin er í gildi. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausamunum til að forðast foktjón.

Miðhálendið – Austan og norðaustan stormur eða rok (Appelsínugult ástand)

11 mar. kl. 15:00 – 12 mar. kl. 12:00 – Austan og síðar norðaustan stormur eða rok, 20-28 m/s en allt að 30 m/s í meðalvindhraða seint um kvöldið. Ekkert ferðaveður.

Hugleiðingar veðurfræðings

Í dag er útlit fyrir austlæga átt og éljagang á austnaverðu landinu en hæglætis veðri í öðrum landshlutum. Ný vinnuvika hefst hinsvegar á talsverðum umhleypingum en veðurpár gera ráð fyrir að kröpp lægð myndist við Nýfundnaland fyrir hádegi í dag og dýpki hratt á leið sinni til Íslands.
Á morgun hvessir af austri, og gera verstu spár ráð fyrir meðalvindhraða yfir 30 m/s á stöku stað við suðurströndina seint annað kvöld. Mestar líkur eru þó á því að hæsti meðalvindhraði verði 25-28 m/s annað kvöld en vindur nær stormstyri og vindhviður yfir 40 m/s síðdegis á morgun á sunnanverðu landinu. Full ástæða er til að fylgjast vel með veðurpsám og viðvörunum, en nú þegar hafa verið gefnar út gular viðvaranir vegna veðursins. Gular viðvaranir merkja að veður hafi nokkur eða staðbundin áhrif, geti valdið töflum eða slysum og tjóni ef aðgát er ekki höfð.
Á þriðjudag er útlit fyrir hvassa norðanátt með snjókomu norðantil og kólnandi veðri, og útlit er fyrir áframhaldandi umhleypingar og kólnandi veður þegar líður á vikuna.

Veðurhorfur á landinu

Austlæg eða breytileg átt, 3-8 en norðaustan 8-15 við suðausturströndina. Allvíða bjartviðri sunnan og vestantil en él eða snjókoma á austanverðu landinu í dag.
Vaxandi suðaustanátt í fyrramálið, allvíða hvassviðri fyrir hádegi en austan og norðaustan stormur eða rok á sunnanverðu landinu síðdegis og annað kvöld. Áfram dálítil él austantil en rigning eða slydda með köflum sunnantil og þurrt um landið norðan og vestanvert.
Hiti 0 til 4 stig sunnan – og vestantil yfir daginn annars víða 0 til 7 stiga frost.
Spá gerð: 10.03.2019 05:01. Gildir til: 11.03.2019 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Norðaustan 15-23 m/s. Rigning suðaustantil, él norðanlands, en þurrt suðvestantil. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Hiti 1 til 6 stig S-til, en annars kringum frostmark.
Á miðvikudag:
Hægt vaxandi SA átt, 8-15 m/s um kvöldið. Úrkomulítið, en rigning eða slydda um sunnanvert landið síðdegis. Hiti um og undir frostmarki en hiti 0 til 4 stig sunnan- og vestanlands.
Á fimmtudag:
Allhvöss eða hvöss austlæg átt með slyddu eða rigningu, en úrkomulítið á norðurlandi. Heldur hlýnandi veður.
Á föstudag:
Útlit fyrir allhvassa norðaustanátt með snjókomu eða éljum. Heldur hægari og úrkomulítið suðvestantil. Hiti kringum frostmark.
Á laugardag:
Líkur á norðaustanátt með éljum og heldur kólnandi veðri.
Spá gerð: 10.03.2019 08:48. Gildir til: 17.03.2019 12:00.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Tugi milljarða til Íran frá Íslandi

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Einfaldara og fljótlegra að uppfæra ökuskírteini

    70 deilingar
    Share 28 Tweet 18
  • Fiskifræðingur segir kvótakerfið algerlega brugðist og lagt landsbyggðina í rúst

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Skjald­borg um sjöfaldan veikindarétt

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Gæsluvarðhald vegna andláts karlmanns í Kópavogi

    58 deilingar
    Share 23 Tweet 15
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?