Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á íslensku batavía salati sem Hollt og gott ehf. hefur dreift á markað. Ástæðan er að það fannst glerbrot í vörunni. Framleiðandinn garðyrkjustöðin Ösp, Laugarási hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Suðurlands innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.
Innköllunin á við vöru sem hafa verið á markað eftir 21. febrúar:
- Vöruheiti: Íslenskt batavía salat í pottum
- Framleiðandinn: Garðyrkjustöðin Ösp, Laugarási
- Dreifingaraðilinn: Hollt og Gott ehf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík
- Strikanúmer: 5690628007748 eða 6690628001494
- Dreifing: Bónus, Krónan, Hagkaup, Melabúðin, Kaupfélag Skagfirðinga
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni í næstu verslun eða hafa samband við dreifingaraðila Hollt og Gott ehf.
Fréttatilkynning frá fyrirtækinu Hollt og Gott ehf.
Garðykjustöðin Ösp, Laugarási í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands (HSL)
hefur ákveðið að innkalla af markaði salat í pottum undir vöruheitinu: Íslenskt batavía.
Glerbrot fannst í einni pakkningu.
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna eftir 21. febrúar sl. eru beðnir að neyta ekki
vörunnar heldur að skila henni í næstu verslun eða hafa samband við dreifingaraðila
Hollt & Gott í síma 575-6000 eða í tölvupósti hg@hollt.is
Upplýsingar um vöru
Heiti vöru: Íslenskt batavía
Strikanúmer: 5690628007748 eða 6690628001494
Dreifing: Bónus, Krónan, Hagkaup, Melabúðin, Kaupfélag Skagfirðinga