Um 460 þúsund erlendir ferðamenn hafa farið frá Íslandi það sem af er ári. Það er svipaður fjöldi og metárið 2018 en þá voru brottfarir erlendra ferðamanna 480 þúsund fyrstu þrjá mánuði ársins. Þetta kemur fram í tölum frá Ferðamálastofu.
Brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 173 þúsund í nýliðnum mars samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða álíka margar brottfarir og mældust í mars metárið 2018. Tvær af hverjum fimm brottförum voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta. Brottfarir Íslendinga voru um 56 þúsund í mars.
41% brottfara Bandaríkjamenn og Bretar
Flestar brottfarir í mars voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna, 37.500 talsins, eða ríflega fimmtungur (21,7%) heildarbrottfara. Bretar voru í öðru sæti, um 34.200 eða fimmtungur brottfara (19,7%).
Brottfarir Kínverja voru í þriðja sæti eða 5,0% af heild og Ítalir í því fjórða (4,8%). Þar á eftir fylgdu Frakkar (4,8%), Þjóðverjar (4,6%), Pólverjar (3,1%), Spánverjar (2,9%), Hollendingar (2,8%) og Danir (2,6%). Frá áramótum hafa um 460 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 421 þúsund talsins. Um er að ræða 9,9% fjölgun milli ára. Samtals voru brottfarir á tímabilinu janúar til mars í ár um 95,8% af þeim brottförum sem þær mældust á sama tímabili metárið 2018.
Brottfarir Íslendinga
Brottfarir Íslendinga voru um 56 þúsund í mars, 16.200 fleiri en í mars 2023 (+41,8%).Hafa ber í huga að utanferðir Íslendinga í tengslum við páska voru í mars í ár en í apríl í fyrra. Frá áramótum (janúar-mars) hafa um 130 þúsund Íslendingar farið utan en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 120 þúsund. Um er að ræða 8,1% fjölgun milli ára.
Lýsigögn
Ferðamálastofa birtir í dag lýsigögn fyrir brottfarartalningar. Með þeim er leitast við að varpa skýrara ljósi á hvernig mælingar fara fram og hvernig niðurstöður eru birtar. Þau má nálgast hér: Lýsigögn fyrir brottfarir farþega.
Aukin talningartíðni
Talningartíðni í flugstöðinni í Keflavík hefur verið aukin frá apríl 2024 og talningarlotur skipulagðar í meira mæli með hliðsjón af flugáætlun. Með því er leitast við að fanga betur þá fjölbreytni sem er í farþegasamsetningu m.t.t. þjóðerna.
Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.
Umræða