,,Hér er galopinn tékki upp á 1,6 milljarð“
Bókun mín á borgarráðsfundi um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu:
,,Hverjir eru það sem með borgarlínuverkefninu að mjólka sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og ríkissjóð? Hér er lagt til að samþykkja 1,6 milljarð úr sjóðum almennings út í loftið. Mynda á sameiginlegan verkefnissjóð sem á að hýsast hjá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH).
Aðsetur verkefnisins verður hjá SSH og verkefnasjóðurinn verður staðsettur þar. Áætlaður kostnaður sveitarfélaganna innan SSH á árunum 2019 og 2020 eru 800 mkr og jafnhátt framlag á að koma frá ríkinu „ef um semst“. Reykjavíkurborg ber 56,5% af þeim kostnaði eða sem nemur tæpum hálfum milljarði á árunum 2019 og 2020.
Þessi fjárútlát eiga að standa straum af kostnaði sem fellur til þ.m.t. launakostnaði núverandi starfsmanna, aðstandenda sem koma að verkefninu, aðkeypta ráðgjöf og aðstöðusköpun. Öllum má vera ljóst að hér er um gríðarlega sóun á opinberu fé að ræða. Engin aðgerðaráætlun eða tímalína er lögð til grundvallar.
Hér er galopinn tékki upp á 1,6 milljarð að ræða. Undarlegasti hlutinn í þessum „samningi“ er fyrirvarinn sem gerður er á hluta framlags sveitarfélaganna (500 millj. kr) er varðar 2. áfanga undirbúnings (verkhönnun og útboð) náist ekki samkomulag milli ríkis og sveitarfélaganna um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033.
Þvílík blind peningasóun í úrelt verkefni – hér er á ferðinni nýr Landsspítalaskandall…!!!“