• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjárhagsstaða Hafnarjarðabæjar heldur áfram að styrkjast

Fallega mynd frá Hafnarfirði sem tekin var á vormánuðum.

Fjárhagsstaða Hafnarjarðabæjar heldur áfram að styrkjast

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. maí 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Ársreikningur 2023 samþykktur í bæjarstjórn

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af rekstri A hluta nam 251 milljón króna sem er nánast sami afgangur og árið á undan. Rekstrarafgangur fyrir A og B hluta nam 808 milljónum króna á árinu 2023 og var afkoma fyrir fjármagnsliði 3.649 milljónir króna. Fjárfestingar á árinu 2023 námu rúmlega 7,1 milljarði króna sem er 74% aukning milli ára.

Skuldaviðmið lækkar niður í 82%

Skuldaviðmið Hafnarfjarðarbæjar hélt áfram að lækka á árinu 2023 úr 85% niður í 82% og er það því verulega undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 2.635 milljónum króna og var 904 milljónum yfir áætlun. Veltufé frá rekstri svaraði til 5,6% af heildartekjum á síðasta ári.

Rekstrartekjur námu 47,3 milljörðum króna á árinu 2023 og jukust um 5,4 milljarða á milli ára. Rekstrargjöld voru 42,0 milljarðar króna og jukust um 5,4 milljarða.  Heildareignir Hafnarjarðarbæjar voru alls 93,9 milljarðar króna um síðustu áramót og jukust um 9,3 milljarða á milli ára. Eigið fé nam 32,8 milljörðum króna í árslok og hækkaði um 4,6 milljarða króna á árinu. Eiginfjárhlutfall hækkaði úr 33,3% í 34,9% yfir árið 2023.

„Ársreikningur síðasta árs einkennist af traustum rekstri og öflugri uppbyggingu innviða. Skuldaviðmið lækkar enn eitt árið og fjárhagsstaða Hafnarjarðabæjar heldur áfram að styrkjast. Á sama tíma hefur hlutfall útsvars og fasteignaskatta af heildartekjum lækkað og álögum á íbúa þannig haldið niðri,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. ,,Einnig er ánægjulegt að sjá veltufé frá rekstri aukast milli ára en það styrkir getu sveitarfélagsins til að standa undir framkvæmdum og skuldbindingum sínum.“

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar 2023:  Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar 2023 22042024 (002).pdf (hafnarfjordur.is)

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    207 deilingar
    Share 83 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?