Ekkert lát er á ölvunar- og fíkniefnaakstri á höfuðborgarsvæðinu, en tuttugu og átta ökumenn voru teknir fyrir þessar sakir um helgina. Sautján voru stöðvaðir í Reykjavík, sex í Hafnarfirði, fjórir í Garðabæ og einn í Kópavogi.
Tveir voru teknir á föstudagskvöld, tíu á laugardag, fimmtán á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.
Þetta voru tuttugu og fjórir karlar á aldrinum 19-41 árs og fjórar konur, 20-37 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.
Umræða