TF-SYN sótti slasaða konu í Fljótavík
Vegna veðurs og slæms sjólags var ákveðið að senda þyrlu til að sækja konuna
TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna slasaðrar konu í Fljótavík. Vegna veðurs og slæms sjólags var ákveðið að senda þyrlu til að sækja konuna.
Björgunarskip frá Ísafirði, á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var sömuleiðis kallað út. Þyrlan flutti konuna á Landspítalann í Fossvogi.
TF-SIF í sjúkraflug til Árósa
Flugvél Landhelgisgæslunnar hélt í vikunni í sjúkraflug til Árósa.
Í vikunni barst Landhelgisgæslunni beiðni frá Landspítalanum þar sem óskað var eftir að TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, myndi annast flug með sjúkling sem þurfti að komast með hraði til Árósa vegna alvarlegra veikinda.
TF-SIF fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli um kvöldmatarleytið á þriðjudag áleiðis til Danmerkur. Í fluginu voru auk sjúklings, læknir, hjúkrunarfræðingur og tveir aðstandendur.
Flugið til Árósa tók fjóra og hálfan tíma og gekk vel. TF-SIF er útbúin til sjúkraflutninga en í henni er gott rými og góð vinnuaðstaða til að sinna sjúklingum í flugi. Í áhöfn Landhelgisgæslunnar voru tveir flugmenn, tveir skipstjórnarmenn og flugvirki. Vegna lengdar flugsins gisti áhöfnin á TF-SIF í Árósum og kom heim síðdegis í gær.