• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Breikkun Vesturlandsvegar – Skipulagsstofunun samþykkir matsskýrslu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. júlí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fyrsti áfangi breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnesi verður boðinn út í vikunni. Verkið í heild snýst um breikkun Vesturlandsvegar á um 9 km kafla milli Varmhóla og Hvalfjarðarvegar. Vegurinn verður 2+1 vegur en á honum verða þrjú hringtorg við Móa, Grundarhverfi og Hvalfjarðarveg. Samhliða breikkuninni verður vegtengingum fækkað og í staðinn gerðir hliðarvegir ásamt reiðstígum og stígum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Fyrsti áfangi nær frá Varmá að Vallá. Tilboð fyrir þann áfanga verða opnuð 11. ágúst en verklok eru áætluð 2023. Næsti áfangi verður boðinn út í haust en verklok hans eru einnig áætluð 2023.
Skipulagsstofnun hefur lokið álitsgerð á matsskýrslu vegna framkvæmdarinnar. Talið er að matsskýrslan uppfylli skilyrði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum og að umhverfisáhrifum hafi verið lýst á fullnægjandi hátt. Þó framkvæmdasvæðið nái yfir níu kílómetra er ekki talið að það geti talist viðkvæmt.
Helstu neikvæðu þættir framkvæmdarinnar felast í áhrifum á landslag og ásýnd en fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér mun umfangsmeiri vegamannvirki en fyrir eru í dag. Fíb fjallaði um málið.
Áhrifin á umferðaröryggi eru þó ótvíræð en í matsskýrslunni segir: „Á þeim kafla Vesturlandsvegar sem hér er til skoðunar eru tæplega 30 vegamót, tengingar og þveranir auk þess sem umferðin er öll á 1+1 vegi án aðskilnaðar milli akstursstefna. Að meðaltali fara rúmlega 9 þúsund ökutæki um veginn á degi hverjum.
Aðskilnaður akstursstefna, fjölgun akreina í sömu átt, fækkun vegtenginga og bygging hringtorga eru allt aðgerðir sem draga úr líkum á umferðarslysum. Sama gildir um uppbyggingu hliðarvega og undirganga undir Vesturlandsveg fyrir innansveitarumferð og aðra en akandi vegfarendur. Áhrif á umferðaröryggi eru metin verulega jákvæð.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    51 deilingar
    Share 20 Tweet 13
  • Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöldi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    96 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Tvö hundruð milljóna styrkur til innflytjenda

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?