Könnun: Heimila ætti brottvísun þeirra sem hafa fengið alþjóðlega vernd ef þeir brjóta af sér
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru á þeirri skoðun að heimila ætti brottvísun þeirra sem hafa fengið alþjóðlega vernd ef þeir brjóta af sér. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að heimila brottvísun þeirra sem hafa fengið alþjóðlega vernd ef þeir brjóta af sér?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 98,4%
Nei: 1,3%
Hlutlausir: 0,3%
Umræða