• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Formaður VR kaupir samskonar gosflöskur á 95 kr. 315 kr. og 399 kr.

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. ágúst 2018
in Óflokkað
A A
0

Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson notar tímann vel til þess að skoða málefni launafólks almennt og hefur oft á tíðum glöggt auga á það sem að betur mætti fara. Nú á föstudegi þegar að flestir eru að klára vinnuvikuna, notar Ragnar hádegið til þess að rölta á milli verslana í nágrenni við gosverksmiðjur til þess að kanna verðlag á gosi.

Formaðurinn situr ekki við hlaðborð í hádeginu og belgir sig þar út eins og sumir aðrir, hann notar hádegishléið til brýnni verkefna, að skoða verðlag og kaupmátt sem er til fyrirmyndar fyrir aðra sem að gegna forystu og eru á launum hjá launþegum. Á kvittununum kemur fram að verðkönnunin fór fram um hálf eitt leitið og hann póstaði svo upplýsingunum á Facebook. Það er aldrei of vel fylgst með neytendamálum og mikið vantar á að reglulega séu birtar verðkannanir. Bæði hérlendis og svo á milli landa, því að stundum er nefnt að á Íslandi séu laun eitthvað hærri en í öðru landi en á sama tíma er húsnæðisverð, matarkarfan, eldsneyti, tryggingar, fatnaður og margt fleira helmingi hærri á Íslandi en í flestum löndum og það gleymist alltaf í samanburðinum. Jafnframt og á sama tíma hefur launamunur stétta aldrei verið meiri í seinni tíð og skemmst er þar að minnast Kjararáðs sáluga.

,,Ég verslaði kolsýrt vatn með ávaxtabragði á þremur stöðum í dag. N1 Ártúnshöfða, 10-11 Vesturlandsveg eða Shell bensínstöðinni og Bónus Árbæ.
Ástæðan fyrir því að ég valdi þessa staði eru að þeir eru allir í labbfæri við stærstu gosframleiðendur landsins.
Ég borgaði fyrir 0,5 lítra flösku af Ávaxtatopp á 95kr. Í Bónus, 315kr. Í N1 og 399kr. Í 10-11.
Nú reikna ég með að Bónus sé með einhverja álagningu og allir þessir risar á markaði með bestu mögulegu viðskiptakjör hjá framleiðendum. Finnst ykkr þetta eðlilegt? “ Spyr Ragnar Þór Ingólfsson að lokum.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    221 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?