• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 5. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Á annan tug grindhvala í flæðarmálinu

ritstjorn by ritstjorn
10. ágúst 2020
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Sextán ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum í nýliðinni viku. Sá sem hraðast ók var á 159 km hraða þar sem leyfilegur hraði er 90 km á klst. Ökumaður var stöðvaður við akstur í Ísafjarðardjúpi. Flestir voru stöðvaðir í Strandabyggð en einnig nokkrir á Patreksfirði og Ísafjarðarbæ. Þá var einn ökumaður stöðvaður við akstur án ökuréttinda og annar ávíttur fyrir að spóla á tjaldsvæði.
Talsvert hefur verið um að ekið hafi verið á búfé á þjóðvegum að undanförnu og bárust lögreglunni á Vestfjörðum fimm tilkynningar um slíkt í síðustu viku. Eru ökumenn beðnir að hafa í huga þá hættu sem skapast af ám við sumarbeit auk þess sem talsvert eignartjón getur af þessu hlotist þar sem bifreiðar fara oft mjög illa og búfénaður drepst. Sömuleiðis eru eigendur þessa fjár hvattir til að reyna eftir fremsta megni að halda því frá vegi.
Hvalreki varð í vestanverðum Kollafirði í byrjun vikunnar. Yfir tug grindhvala voru í flæðarmálinu og var eitt dýrið sært. Það drapst skömmu síðar. Björgunarsveitin Dagrenning sigldi út að grindhvalahópnum sem var þá um 200 metra frá landi. Tveir til þrír úr grindhvalahópnum voru með skrámur á skrokknum að sögn björgunarsveitarfólks en voru sprækir og var þeim smalað út á haf ásamt hinum í hópnum.
Vinnuslys varð um borð í bát í Bíldudalshöfn á föstudag er maður fékk kaðal með miklu afli í síðuna og féll við höggið. Maðurinn var með meðvitund en fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur til skoðunar og aðhlynningar. Atvikið er rannsakað af lögreglu og Vinnueftirlitinu eins og venja er.
Tilkynning barst um að menn væru að skjóta fugla á Óshlíð á laugardag. Er lögreglan mætti á staðinn viðurkenndu mennirnir að hafa verið að skjóta úr byssu en ekki á fugla. Slíkt er litið alvarlegum augum enda meðferð skotvopna bönnuð á þessu svæði sem sannarlega er útivistasvæði almennings. Var aðilunum bent á að setja sig í samband við Skotíþróttafélag Ísafjarðar sem er með skotæfingasvæðið til slíkra verka á Breiðadalsheiði.
Þá fór lögreglan í eftirlit á veitinga- og skemmtistaða á norðanverðum Vestfjörðum til að athuga hvort farið væri eftir tilmælum um sóttvarnarreglur. Engar athugasemdir þurfti að gera af hálfu lögreglunnar.
Lögreglan þurfti að hafa afskipti af aðilum vegna samkvæmishávaða frá íbúðarhúsi á Ísafirði aðfaranótt sunnudagsins sl. Fólk er beðið um að sýna nágrönnum sínum tilhlýðilega virðingu og ganga hægt og hljóðlega um gleðinnar dyr.

  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Boðar nýtt útspil í heilbrigðismálum

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?