• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lifum með veirunni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. ágúst 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar:

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra

Ljóst er að íslenskt samfélag er nú að hefja annan kafla í glímunni við Covid-19 þar sem vera kann að beita þurfi aðgerðum bæði innan lands og á landamærum um langt skeið til að hefta útbreiðslu veirunnar. Veiran er enn í vexti víða um lönd og sums staðar verið að herða reglur aftur.
Sóttvarnalæknir hefur lagt áherslu á að halda beri áfram skimunum á landamærum auk þess sem nú eru í gildi umtalsverðar takmarkanir á samkomuhaldi í samfélaginu. Verið er að beita skimunum, sýnatökum, smitrakningu, einangrun og sóttkví líkt og gert hefur verið allt frá upphafi faraldursins og mun það verða gert áfram. Vera kann að slakað verði á takmörkunum eða þær hertar allt eftir því hver þróunin verður.
Margháttað samráð hefur verið viðhaft allt frá því að veiran skaut fyrst upp kollinum hér á landi. Stýrihópar hafa verið starfandi, annars vegar um innanlandsvarnir og hins vegar um skimanir á landamærum þar sem ýmsir aðilar hafa verið kallaðir til.
Með vísan til þess hversu stórt samfélagsverkefni er um að ræða liggur fyrir að við þessi kaflaskil þarf að efna til samráðs helstu lykilaðila um áframhaldandi aðgerðir gegn Covid-19. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að boða til samráðsvettvangs í formi vinnustofu þann 20. ágúst nk. Þar verður rætt hvernig móta megi aðgerðir og stefnu til lengri tíma litið. Vegna takmarkana á samkomum fer hluti af vinnustofunni fram með fjarfundabúnaði í fleiri hópum til þess að sem flest sjónarmið komist að.
Heilbrigðisráðuneytið vinnur nú að undirbúningi vinnustofunnar og mun bjóða til þessa vettvangs innan skamms í samstafi við önnur ráðuneyti og stjórnvöld. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi og verklagi snemma í næstu viku.
Í framhaldi af vinnustofunni verður komið á fót fimm manna verkefnateymi til að annast framkvæmd aðgerða vegna Covid-19. Teymið mun starfa undir stjórn sóttvarnalæknis út árið 2021.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?