Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til rekstrar félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfismála á árinu 2026. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til og með 15. nóvember 2025. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfismál og að efla almenna vitund um gildi málaflokksins.
Umsækjendur rekstrarstyrkja ráðuneytisins þurfa að uppfylla skilyrði sem fram koma í reglum um almenna rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum.
M.a. þurfa samtökin að hafa umhverfismál sem eitt af meginmarkmiðum félagsins skv. samþykktum þess, vera opin fyrir almennri aðild einstaklinga eða félagasamtaka (sé um regnhlífarsamtök að ræða), þau skulu ekki starfa í hagnaðarskyni, hafa að lágmarki 30 félaga, hafa opið og endurskoðað reikningshald og taka saman ársskýrslur. Þá er í reglunum sett fram viðmið, m.a. varðandi þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um umhverfismál og miðlun þeirra, sem höfð eru til hliðsjónar við úthlutun styrkjanna.
Umsækjendur sem hlutu rekstrarstyrk fyrir árið 2025 skulu skila yfirliti yfir ráðstöfun styrksins með umsókninni.
Reglur um úthlutun almennra rekstrarstyrkja til félagasamtaka
Sótt um á eyðublaðavef Stjórnarráðsins
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Umsækjendur skrá sig inn og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilamála samkvæmt meðfylgjandi reglum verða ekki teknar til umfjöllunar.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 545 8600 eða í tölvupósti á netfangið urn@urn.is

