,,Samkvæmt fréttum fjölmiðla var lítið eða ekkert minnst á heimilin á landsfundi Samfylkingarinnar um liðna helgi og engir aðgerðarpakkar Samfylkingarinnar taka mið af þörfum þeirra eða þeirri neyð sem mörg þeirra standa nú þegar frammi fyrir.“ Segir Ásta Lóa Þórsdóttir formaður Hagsmunasamtaka Heimilianna.
,,EKKERT BÓLAR HELDUR Á ÞVÍ AÐ SAMFYLKINGIN GANGIST VIÐ, HVAÐ ÞÁ TAKI ÁBYRGÐ Á, SÍNUM HLUT Í ÞVÍ AÐ MEIRA EN 15.000 FJÖLSKYLDUR HAFA MISST HEIMILI SÍN FRÁ HRUNI.
Samfylkingin skuldar þjóðinni, en þó sérstaklega þeim sem lentu í mulningsvélum bankanna af þeirra völdum, afsökunarbeiðni og skýringar.
Samfylking þarf m.a. að biðjast afsökunar á:
ÁRNA PÁLS LÖGUNUM
- Lögum sem lokuðu skuldara inni í „gildrum“ bankanna og lokuðu á allar undankomuleiðir þeirra.
- Lögum sem brutu með ótvíræðum hætti gegn lög- og stjórnarskrárvörðum réttindum skuldara.
- Lögum sem voru bein orsök þess að þúsundir fjölskyldna misstu heimili sín.
UMBOÐSMANNI SKULDARA OG SKULDAAÐLÖGUN
- Embætti sem fékk skuldara til að halda að verið væri að hjálpa þeim
- Embætti sem hreinlega vann gegn hagsmunum skuldara
- Embætti sem „matreiddi“ skuldara fyrir bankana í staða þess að standa með þeim
- Embætti sem skildi við marga skuldara í verri stöðu en ef þeir hefði ekki leitað til þess
110% LEIÐINNI
- Leið sem tryggði að fólk var áfram skuldugt jafnvel þó það missti allt sitt
- Leið sem tryggði bönkunum óheftan aðgang að fólki sem ekkert á svo árum skiptir, jafnvel enn í dag
- Leið sem, ásamt skuldaðlöguninni, hefur haldið tugþúsundum í gildru árangurslausra fjárnáma allt frá hruni
FYRIR AÐ VERJA BANKAKERFIÐ OG ENDURREISA ÞAÐ Í ÓBREYTTRI MYND
- Fyrir að hafa varið og svo endurreist sama eyðileggingaraflið og setti okkur á hausinn og sleppt því aftur lausu á þjóðina í óbreyttri mynd
- Fyrir að koma í veg fyrir að fjármálakerfið, gerendur hrunsins, tækju í nokkru afleiðingum gjörða sinna gegn heimilunum
- Fyrir að velta sök fjármálafyrirtækjanna og ábyrgð yfir á varnarlaus heimili.
Í STUTTU MÁLI, FYRIR AÐ HAFA FÓRNAÐ HEIMILUNUM FYRIR FJÁRMÁLAKERFIÐ!
15.000 heimili eiga rétt á uppreist æru og afsökunarbeiðni frá þeim sem ollu hörmungum þeirra!“
Umræða