• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 26. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Lög samþykkt sem auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda og bæta upplýsingar um leigumarkaðinn

Mynd: STJR. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra

Lög samþykkt sem auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda og bæta upplýsingar um leigumarkaðinn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um breytingu á húsaleigulögum. Lögunum er ætlað að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð. Þeim er einnig ætlað að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með almennri skráningu leigusamninga og auknu gagnsæi um upplýsingar í leigusamningum.

  • Samkvæmt lögunum verður óheimilt að semja um að leigufjárhæð í tímabundnum samningum taki breytingum á fyrstu 12 mánuðum samningsins.
  • Skylda til að skrá leigusamninga í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verður útvíkkuð þannig að hún nái til allra sem leigja út húsnæði til íbúðar. Áður takmarkaðist skráningarskyldan við leigusala sem leigja út fleiri en tvær íbúðir.
  • Leigusamningar í leiguskrá verða framvegis ekki undanþegnir upplýsingarétti almennings.
  • Skattívilnun vegna leigutekna leigusala verður háð skráningu leigusamnings í leiguskrá.

„Lögin auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda sem og upplýsingar um leigumarkaðinn. Þau marka þannig tímamót og sýna hvernig við í ríkisstjórninni ætlum og erum að taka húsnæðismálin föstum tökum,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Heildstæðar og greinargóðar upplýsingar fást um leigumarkaðinn

Skylda til að skrá leigusamninga um húsnæði sem leigt er til búsetu í leiguskrá er mikilvæg til að heildstæðar og greinargóðar upplýsingar fáist um leigumarkaðinn, meðal annars um þróun leiguverðs og tegund og lengd leigusamninga.

„Þær upplýsingar skipta miklu máli við gerð leigusamnings, ekki síst við ákvörðun leiguverðs, en eru ekki síður mikilvægar til að undirbyggja upplýstar ákvarðanir stjórnvalda við stefnumótun í málaflokknum,“ segir félags- og húsnæðismálaráðherra.

„Upplýsingarnar koma einnig til með að auðvelda eftirlit með búsetu í óviðunandi húsnæði, sem munu meðal annars nýtast slökkviliðinu, en einnig með svartri leigustarfsemi. Þessar upplýsingar geta því til að mynda nýst til að koma auga á svarta skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis til ferðamanna. Leiguskráin getur því nýst sem mikilvægt verkfæri stjórnvalda á mörgum sviðum.“

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Líkamsárás í Túnahverfi og Hamas-samtökin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bankarnir vilja peningana þína

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Viðvörun: Vindhviður 35 m/s og yfir 45 m/s

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?