Það hefur vart verið þverfótað fyrir nýjum milljónamæringum í höfuðstöðvum Íslenskrar getspár undanfarna daga. Einn þeirra, karlmaður um sextugt og íbúi í Reykjanesbæ, heyrði af því á kaffistofunni í vinnunni að heppinn Íslendingur hefði hreppt 2. vinning í Vikinglotto, um 11,5 milljónir króna. Í spjalli við vinnufélagana samgladdist maðurinn vinningshafanum innilega yfir að hafa hreppt slíkan vinning í aðdraganda jólanna en datt um leið í hug að athuga sinn eigin miða – sem þá reyndist sjálfur milljónamiðinn. Já þau eru sannarlega heppin í Reykjanesbæ!
Annar nýr milljónamæringur er ungur tónlistarmaður á höfuðborgarsvæðinu sem hlaut óskiptan fyrsta vinning í Lottó um síðustu helgi, um 11 milljónir. Vinningurinn kemur sér einstaklega vel þar sem hægt er að láta drauminn um alls konar nýjar græjur rætast þótt undanfarin misseri hafi ekki verið sérlega hagfelld tónlistarfólki.
Stærsti vinningurinn féll þó í skaut hjóna á besta aldri sem unnu þrefalda Lottópottinn 27. nóvember síðastliðinn. Dráttur varð á því að vinningshafarnir fengju góðu fréttirnar þar sem þau kaupa alltaf tveggja vikna miða á einhverjum af sínum þremur uppáhalds sölustöðum og láta um leið athuga með útdrætti síðustu vikna. Vinningsmiðinn var keyptur í Fjarðarkaupum í þetta skipti og færði þeim hjónum tæpar 35 milljónir króna! Það getur greinilega borgað sig að halda í hefðirnar en þó má minna á að það er auðvelt að skanna alla miða í Lottóappinu til að sjá alla mögulega vinninga strax.
Íslensk getspá óskar þessum vinningshöfunum innilega til hamingju og þakkar þeim og öllum öðrum lottóspilurum fyrir stuðninginn við eignaraðila Getspár sem eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Öryrkjabandalag Íslands og Ungmennafélag Íslands, sá stuðningur skiptir miklu máli.