• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögreglan hættir á Facebook

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu mun ekki loka Facebook

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lögreglan á Suðurnesjum hættir á Facebook

Öflug persónuvernd er lögreglunni á Suðurnesjum kappsmál og leggjum við áherslu á að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við kröfur persónuverndarlaga. Lögum samkvæmt ber okkur að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga sé með þeim hætti að viðeigandi öryggi upplýsinganna sé tryggt. 

Persónuvernd hefur gert athugasemdir við notkun lögreglu hér á landi á samfélagsmiðlinum Facebook og þá sérstaklega í tengslum við móttöku upplýsinga í gegnum miðilinn. Vegna þessa hefur LSS tekið þá ákvörðun að hætta að nota Facebook í  samskiptum sínum við almenning og loka síðunni.  Síðunni verður lokað eftir sólarhring.

Upplýsingar og tilkynningar til almennings munu áfram verða birtar á heimasíðu lögreglunnar, logreglan.is og í fjölmiðlum eftir því sem við á og við bendum fólki jafnframt á netfang okkar sudurnes@logreglan.is og 112.is þar sem brugðist er við erindum um leið og þau berast.“

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu hættir ekki á Facebook

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma á framfæri að tilgangurinn með notkun lögreglu á Facebook sem samskiptamiðli er fyrst og fremst að koma mikilvægum skilaboðum til almennings, auðvelda samskipti, bæta og auka þjónustu við notendur og einnig að svara kalli nútímans um breyttar og fjölbreyttari samskiptaleiðir með því að fjölga þeim leiðum sem eru í boði. Þess má geta að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur verið á Facebook frá árslokum 2010 og eru fylgjendur hennar á þessum vettvangi nú um 95 þúsund.

Í mars 2021 skilaði Persónuvernd af sér ákvörðun í kjölfar frumkvæðisathugunar á hvort notkun embættisins á samfélagsmiðlinum Facebook væri í samræmi við persónuverndarlög. Í ákvörðun Persónuverndar var sett út á atvik þar sem LRH óskaði eftir upplýsingum frá almenningi í gegnum einkaskilaboð á Facebook-síðu hennar. Í kjölfar ákvörðunarinnar var farið yfir verklag og tekið fyrir að beðið yrði um upplýsingar frá almenningi gegnum miðilinn, en þess í stað aðrar leiðir nýttar til móttöku upplýsinga.

Tekið skal fram að embættið veitir ekki persónugreinanlegar upplýsingar til aðila í gegnum samskiptamiðilinn heldur leiðbeinir fólki um að beina erindum í réttan farveg sé þess þörf. Því telur embættið að ekki sé tilefni til þess að hætta notkun þess á samfélagsmiðlinum í ljósi þess að um er að ræða mikilvægan vettvang fyrir lögreglu til að ná til almennings og auka sýnileika lögreglu í samfélaginu.

Embættið vill taka fram að persónuverndarmálefni eru í sífelldri endurskoðun hjá embættinu með það að leiðarljósi að öll meðferð þess á persónuupplýsingum sé í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga enda mikilvægt að öryggi persónuverndarupplýsinga sé tryggt í starfsemi lögreglu.

Umræða
Share14Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Alþingismanni hótað

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Stjórnarsáttmáli sem Viðreisn og Samfylkingin meintu raunverulega ekki neitt með

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?