• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stórt skref í átt að nýrri þjóðarhöll

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri við undirritun samnings hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands

Stórt skref í átt að nýrri þjóðarhöll

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. janúar 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Stofnað hefur verið félag sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal, Þjóðarhöll ehf.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu samning milli ríkis og Reykjavíkurborgar um stofnun félagsins í dag.

Fyrsta verk Þjóðarhallar ehf. er að efna til forvals og samkeppni um hönnun og byggingu þjóðarhallarinnar. Auk þess tekur félagið við verkefnum framkvæmdanefndar um þjóðarhöll í Laugardal sem lætur af störfum.

Stórbætt aðstaða fyrir alþjóðlega keppnisviðburði, íþróttafélög og skólabörn

Í samningnum er byggt á tillögum starfshóps um undirbúning uppbyggingar þjóðarleikvanga í íþróttum. Höllin mun rísa sunnan við Laugardalshöll upp að Suðurlandsbraut og verður 19.000m2 að stærð. Samkvæmt frumathugun framkvæmdanefndar er miðað við að byggingin muni taka 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 á tónleika. Til samanburðar rúmar Laugardalshöll 5.500 gesti hið mesta.

Einhugur ríkir um að mannvirkið muni nýtast vel sem þjóðarhöll í íþróttum og uppfylli allar kröfur sem gerðar eru til alþjóðlegra keppnisviðburða. Þjóðarhöllin mun stórbæta aðstöðu fyrir íþróttafélög og skóla í nágrenni Laugardals fyrir kennslu, skólaíþróttir, æfingar og keppni. Þá verður þjóðarhöllin mikilvæg miðstöð fyrir afreks- og almenningsíþróttir og mun nýtast fyrir viðburði tengdum menningu og atvinnulífi.

Kostnaður í samræmi við notkun

Eignarhlutur ríkisins við stofnun félagsins er 55% og eignarhlutur Reykjavíkurborgar er 45%. Kostnaðarskiptingin byggist á úttekt á þörfum hvors aðila fyrir sig á notkun þjóðarhallarinnar.

Stofnun félagsins um byggingu þjóðarhallar byggist á viljayfirlýsingu milli ríkis og Reykjavíkurborgar frá 6. maí 2022, stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og samstarfssáttmála meirihluta borgarstjórnar. Hann byggist einnig á heimild í fjárlögum fyrir 2024 um stofnun félags um þjóðarhöll og upplýsingum úr frumathugun framkvæmdanefndar um þjóðarhöll í Laugardal sem kynnt var þann 16. janúar 2023.

Mikilvæg uppbygging til framtíðar

Laugardalshöll hefur þjónað þjóðinni vel en uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til alþjóðakeppni í dag. Tímabært er að ráðast í hönnun á nýju mannvirki, uppbyggingu til framtíðar sem eykur samkeppnishæfni borgar og þjóðar á alþjóðavísu. Hjarta íþróttastarfs á Íslandi verður áfram í Laugardalnum með stórbættri aðstöðu fyrir alla notendur og almenning og samnýtingu á þeim mannvirkjum sem fyrir eru.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Sigurður Fannar í héraðsdómi – réð dóttur sinni bana

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • SOS frá Landssambandi lögreglumanna – Ekki litið á lögreglumenn sem opinbera starfsmenn!

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Andlegu málin með Gísla Hvanndal: Katrín Lind Hönnudóttir miðill og heilari

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Vestmannaeyjabær stefnir Vinnslustöðinni – Bótakrafa upp á um tvo milljarða króna

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?