Í dag má búast við norðan kalda eða strekkingi með éljagangi norðanlands, en væntanlega léttir til sunnan heiða. Á morgun (miðvikudag) er áttin áfram norðlæg og áfram líkur á éljum fyrir norðan. Það kólnar í veðri hjá okkur því með norðanáttinni berst hrollkalt heimskautaloft yfir landið. Kuldakastið nær hámarki aðfaranótt fimmtudags og framan af fimmtudegi, þá verður frostið á landinu allvíða á bilinu 10 til 20 stig.
Að kuldakastinu loknu er útlit fyrir stór tíðindi í veðrinu á föstudag.
Þá er óveður af verri gerðinni í vændum því spár gera ráð fyrir að sérlega djúp lægð nálgist landið úr suðvestri (þrýstingi í lægðarmiðju er spáð jafnvel niður fyrir 930 hPa). Búast má við austlægum stormi, roki eða ofsaveðri, hvassast sunnantil á landinu framan af föstudegi. Víða snjókoma eða slydda, úrkomumest sunnan- og austanlands. Hlýnandi veður, rigning á láglendi um landið sunnanvert og við austurströndina seinnipartinn með hita 1 til 5 stig, en vægt frost fyrir norðan. Talsvert hægari vindur á landinu um kvöldið.
Víðtækar samgöngutruflanir eru líklegar á föstudaginn og í raun verður ekkert ferðaveður. Einnig eru líkur á foktjóni, sérílagi sunnantil á landinu. Fólki er bent á að sýna varkárni til að fyrirbyggja slys og festa lausamuni eins og frekast er kostur. Að lokum má geta þess að búast má við hárri sjávarstöðu vegna áhlaðanda.
Veðurhorfur á landinu
Norðan 8-13 m/s í dag og él norðanlands, en léttir til sunnan heiða. Frost 1 til 6 stig síðdegis og kólnar meira í kvöld.
Heldur hægari vindur á morgun, áfram líkur á éljum norðantil á landinu og frost 3 til 13 stig.
Spá gerð: 11.02.2020 05:37. Gildir til: 12.02.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-10 og víða léttskýjað, en stöku él við norðurströndina. Frost 6 til 20 stig, kaldast í innsveitum. Vaxandi suðaustanátt SV-til á landinu síðdegis, þykknar upp með éljum við ströndina og dregur úr frosti.
Á föstudag:
Austan stormur, rok eða ofsaveður, hvassast sunnantil á landinu framan af degi. Víða slydda eða snjókoma, úrkomumest sunnan- og austanlands. Hlýnandi veður, rigning á láglendi um landið sunnanvert og við austurströndina undir kvöld með hita 1 til 5 stig, en vægt frost fyrir norðan. Talsvert hægari vindur á landinu um kvöldið.
Á laugardag:
Gengur í austan hvassviðri eða storm með rigningu eða slyddu, einkum sunnan- og austantil á landinu. Hiti 1 til 6 stig síðdegis.
Á sunnudag:
Norðaustlæg átt með rigningu eða slyddu N-lands og víða snjókomu um kvöldið, annars úrkomulítið. Heldur kólnandi.
Á mánudag:
Norðanátt og snjókoma eða él N- og A-lands, en úrkomulaust á S- og V-landi.
Spá gerð: 11.02.2020 08:25. Gildir til: 18.02.2020 12:00.