• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Galið að Samherji ráði en sjóðir eigi 53% sagði Ragnar Þór

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Mótmælti stjórn Samherja og eignarhaldi á Eimskip eftir að Samherjaskjölin voru birt  

Samherji Holding ehf., systurfélag Samherja, jók í gær hlut sinn í Eimskipafélagi Íslands hf. um 3,05% og á nú 30,11% hlut í fyrirtækinu. Eins og lög gera áskilnað um mun Samherji Holding senda öðrum hluthöfum yfirtökutilboð innan fjögurra vikna. En þetta kemur fram í tilkynningu Samherja.  

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, en lífeyrisjóður VR er næst stærsti hluthafi í Eimskipafélaginu hf. gagnrýndi harðlega í lok nóvember að Samherji stjórni Eimskipi þrátt fyrir að lífeyrissjóðirnir eigi meira en helmingshlut í fyrirtækinu. Þetta sé galin staða, sérstaklega í ljósi þess sem komið hafi fram um meinta vafasama viðskiptahætti Samherja í Namibíu. Í viðtali við Rúv kom fram að Samherji Holding ehf. á Sæból, sem á Kýpurfélögin, sem eiga Máritíus-félögin, sem aftur halda utan um Samherjastarfsemina í Namibíu, að því er fram hefur komið í tengslum við Samherjaskjölin. 

Samherji Holding ehf. sé líka stærsti einstaki hluthafinn í Eimskip eða kjölfestuhluthafinn þá með 27,1 prósent en nú 30.1 prósent. Næstmest á Lífeyrissjóður verslunarmanna, 14,9 prósent og þá Gildi 12,4 prósent. Níu lífeyrissjóðir eru í hópi tuttugu stærstu hluthafa í Eimskip og áttu samtals 53 og hálft prósent í Eimskip í lok nóvember s.l.
„Lífeyrissjóðirnir, lífeyrissjóðir landsmanna, almennings, eiga meirihluta í félaginu en fyrirtækinu er stjórnað af Samherja, bæði stjórninni og síðan forstjóra. Og þetta er algerlega galin staða fyrir lífeyrissjóðina að vera í sérstaklega í ljósi þess að félagið, sem á hlutinn og heldur utan um hlut Samherja, Samherji Holding, er einmitt félagið, sem að hefur verið, kom fram í þessum skjölum, þessum rannsóknum bæði Kveiks og Stundarinnar um mjög vafasamar meintar mútur og mjög vafasama viðskiptahætti og aðra spillingu,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR í viðtalinu við Rúv. 
„Ef ég tala út frá sjónarhorni sjóðsfélagans. Í þessu tilfelli er ég sjóðfélagi í Lífeyrissjóði verslunarmanna, þá lít ég á það sem algert hneyksli að þessi staða sé uppi. Bæði það að fyrirtæki í minnihluta skuli stjórna fyrirtækinu og ráða því á meðan að lífeyrissjóðirnir samanlagt eiga meirihlutann í félaginu.“ Ragnar Þór sagði jafnframt að VR hafi einmitt skipt út sínum stjórnarmönnum í Lífeyrissjóði verslunarmanna til að verkalýðshreyfingin og VR hefðu sterkari rödd þegar kæmi að ákvörðunum. Hann sagðist þá einnig ætla að mótmæla spillingu og koma sjónarmiðum sínum á framfæri til stjórnarmanna í Lífeyrissjóði verslunarmanna.

Í tilkynningu Samherja í dag segir jafnframt: ,,Tilgangurinn með þessum auknu hlutafjárkaupum er fyrst og fremst að sýna í verki þá trú sem Samherji Holding hefur á rekstri Eimskips og þeim breytingum sem ráðist hefur verið í rekstri fyrirtækisins að undanförnu en áhrif þeirra eru ekki að fullu komin fram.
Eimskip byggir á traustum grunni. Fyrirtækið er elsta skipafélag landsins en rætur þess liggja til ársins 1914. Hefur það verið einn af burðarásum íslensks atvinnulífs um margra áratugaskeið.

Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja

„Eimskip er allt að einu í meirihlutaeigu íslenskra lífeyrissjóða sem saman eiga rúmlega helming hlutafjár. Það er minn skilningur að stjórn Eimskips og stjórnendur hafi verið einhuga um þær miklu breytingar sem gerðar hafa verið á rekstrinum.
Samherji Holding telur Eimskip vel til þess fallið að vera áfram skráð í Kauphöll Íslands og vonar að sem flestir hluthafar, stórir og smáir, sjái hag sínum best borgið með því að styðja áfram við þá uppbyggingu og fylgi félaginu um ókomin ár,“ segir Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Alþingismanni hótað

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?