Töluvert hefur borið á því að almenningur hafi farið langt inn skilgreint hættusvæði við gosstöðvarnar í Geldingardal og jafnvel inn á þröng svæði á milli hrauntunga, þar sem lítið má út af bregða og fólk lokist inni. Dæmi um þetta má sjá á myndum sem teknar voru með einnar klukkustundar millibili.
Skilgreinda hættusvæðið sem nú er hægt að nálgast á korti – sjá að neðan. Þar er svæði afmarkað sem fólk getur verið í bráðri hættu vegna skyndilegra atburða sem geta orðið á gosstöðvum. Innan hættusvæðisins er allra mesta hættan á opnun fleiri gossprungna án fyrirvara og því getur fylgt skyndilegt og hratt hraunflæði sem erfitt er að forðast. Því má segja að hættusvæðið sé í raun stærra en það sem er merkt á kortinu því það fylgja einnig aðrar hættur á svæðinu sem fylgja framrás hrauns og uppsöfnunar gass. Því er fólk beðið um að nota almenna skynsemi og meta aðstæður á svæðinu hverju sinni.
- Hægt er að finna kortið á vefsíðu Veðurstofu Ísland, þar er hættusvæðið afmarkað og gönguleiðir A og B eru sýndar. Gönguleið A, hefur verið færð til í samræmi við tilmæli Vísindaráðs almannavarna og liggur utan þessa skilgreinda hættusvæðis.Á vefsíðu Veðurstofu Íslands
- https://www.vedur.is/um-vi/frettir/ny-gossprunga-a-reykjanesi
- Facebooksíða Lögreglustjórans á Suðurnesjum
- https://www.facebook.com/lss.abending/photos/a.379106208776494/4011845138835898/
- Facebooksíða almannavarna
https://www.facebook.com/Almannavarnir/photos/a.228403573858100/4259027414129009/ - Vefsíða almannavarna
www.almannavarnir.is
Umræða