• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 22. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

161 þúsund brottfarir erlendra farþega í mars

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. apríl 2023
in Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent
A A
0

Brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 161 þúsund í nýliðnum mars samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða fjórða stærsta marsmánuð frá því mælingar hófust en brottfarir í mars í ár voru um 93% af því sem þær mældust metárið 2018. Ríflega tvær af hverjum fimm brottförum voru tilkomnar vegna Breta og Bandaríkjamanna. 

Bretar og Bandaríkjamenn fjölmennastir

Brottfarir Íslendinga voru tælega 40 þúsund eða 70% af því sem þær mældust árið 2018 þegar mest var.
Flestar brottfarir í mars voru tilkomnar vegna Breta og Bandaríkjamanna eða um tvær af hverjum fimm (42,7%). Bretar voru um 38 þúsund talsins eða tæplega fjórðungur (23,6%) og Bandaríkjamenn um 31 þúsund eða tæplega fimmtungur (19,1%).
Bretar og Bandaríkjamenn hafa verið stærstu þjóðernin í marsmánuði síðustu tvo áratugi frá því mælingar Ferðamálastofu hófust, með örfáum undantekningum.
 
Brottfarir Þjóðverja voru í þriðja sæti í mars eða 6,6% af heild og Pólverjar í því fjórða (5,5%). Þar á eftir fylgdu Ítalir (4,7%), Frakkar (4,6%), Spánverjar (2,3%), Danir (2,2%), Kínverjar (2,1%) og Hollendingar (2,1%).

Brottfarir Íslendinga

Brottfarir Íslendinga voru um 39.800 í mars eða álíka margar og þær mældust í sama mánuði árið 2016 og 2017. Þegar mest var mældust brottfarir Íslendinga í marsmánuði tæplega 57 þúsund eða árið 2018. Frá áramótum (jan-mars) hafa brottfarir Íslendinga mælst um 120 þúsund eða 88% af því sem þær mældust á sama tímabili metárið 2018.
 
*Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá undir liðnum Tölur og útgáfur/Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.
Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.
Talningar byggja á úrtaksmælingu gerða á tímabilinu 16.-30. nóv. Framkvæmdir í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli gerðu það að verkum að ekki var hægt að taka úrtak fyrri hluta mánaðarins.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    149 deilingar
    Share 60 Tweet 37
  • Líkamsárás í Úlfarsárdal

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fjársvik: Selur mörgum sama gáminn sem ekki er til

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?