Enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni og verður 1. vinningur því þrefaldur í næstu viku.
Tveir skiptu á milli sín bónusvinningnum og fær hvor þeirra 192.830 kr. í sinn hlut. Annar miðinn er í áskrift en hinn var keyptur í Prinsinum, Hraunbæ 121 í Reykjavík. Þrír voru með 4 Jókertölur í réttri röð og fá þeir 100.000 kr. hver í vinning. Miðarnir voru keyptir í Olís í Mjódd, N1, Skógarseli 10 í Reykjavík og einn er í áskrif.
Umræða