• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ökumaðurinn var að „aflæsa farsíma“ og ók á öfugum vegarhelmingi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. maí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lögreglan á Suðurlandi skýrir frá verkefnum

Nú eru tvær vikur undir í samantektinni en á þeim tíma hafa 76 ökumenn verið kærðir fyrir að aka of hratt í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Álagðar sektir vegna þessara brota nema um það bil 6,5 milljónum króna og ljóst að einhvern „svíður í budduna“ undan þeim. Tuttugu og einn af þessum ökumönnum sæta sektum sem eru á bilinu 120 til 150 þúsund krónur. Flestir þeirra sem óku of hratt eru vestanmegin í umdæminu en ekki er að sjá mun á mældum hraðað almennt eftir svæðum.
Einn ökumaður er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og 4 eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Einn þessara fjögurra var með barn sitt í bílnum og fengu barnaverndaryfirvöld þann þátt til úrvinnslu líkt og lög mæla fyrir um.
7 umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu, öll án teljandi meiðsla.   Á Flateyjaraurum í Sveitarfélaginu Hornafirði valt grafa, þann 28. apríl, út af vagni þegar vegkantur gaf sig undan þunga flutningsins. Þann 3. maí varð árekstur með tveimur bifreiðum sem ekið var um Suðurlandsveg vestan Ölfusárbrúar. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar kvaðst hafa verið að „aflæsa símanum“ sínum og fipast við aksturinn við það og þannig ekið yfir á öfugan vegarhelming.
4 mál komu upp þar sem tilkynnt var um sinueld eða eld í gróðri. Eldar þessir hafa verið slökktir og ekki sérstakir eftirmálar af þeim en ástæða er til þess að vara við því að gróður er víða þurr og hætta á hraðri útbreiðslu elds ef hann kviknar í gróðrinum.
Þann 6. maí kom upp eldur í fjárhúsum á bæ í Mýrdal.   Vísbendingar eru um að eldsupptök hafi verið í raftæki en það er enn til rannsóknar. 3 fullorðnar ær og 4 lömb drápust í brunanum. Öðrum fénaði tókst bændum að bjarga út úr brennandi húsunum.
Umtalsverð vinna hefur verið unnin í kring um Covid faraldur sem öllum er nú kunnugt um.   Enda þótt reglur um samkomubann hafi verið rýmkaðar er ennþá full ástæða til þess að fara varlega og gæta þess að fylgja þeim reglum sem í gildi eru. Í upphafi var sagt að við værum öll almannavarnir. Það hefur ekkert breyst og árangurinn sem náðst hefur og nú þarf að verja byggir algerlega á því að allir leggist á eitt og gæti að sóttvörnum.
Um liðna helgi voru margir á ferðinni.  Rúmlega 11 þúsund bílar fóru um Hellisheiði bæði á laugardag og sunnudag og rúmlega 3000 bílar um teljara austan við Hellu og víða þar sem fólk kom saman mátti sjá að örlítil aðgæsla hefði ekki skaðað a.m.k.   Lögreglan á Suðurlandi hvetur fólk til þess að sýna aðgæslu í verki svo við lendum ekki í bakslagi eins og virðist vera að gerast í nálægum löndum. Það er til mikils að vinna og þú berð ábyrgð eins og allir hinir.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    74 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Eftirlýst kona handtekin

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?