6.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Grunaður um nauðgun, ránstilraunir og líkamsárásir – Fjögurra vikna gæsluvarðhald

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 8. júní, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn er grunaður um mörg brot á undanförnum vikum, m.a. nauðgun, ránstilraunir og líkamsárásir. Síðasta brotið var framið í austurborginni í gærmorgun þar sem maðurinn var handtekinn á vettvangi. Gæsluvarðhaldið grundvallast m.a. á því að nauðsynlegt sé að verja aðra fyrir árásum hans.

Úrskurður héraðsdóms var kærður til Landsréttar. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.