• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Frekir, tengdir og ríkir fram fyrir röð

Frekir, tengdir og ríkir fram fyrir röð

Alvarleg aukaverkun þess að gera ekkert

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. maí 2023
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Viðreisn, skrifar
Nýlega hitti ég konu sem sagði mér frá dóttur sinni sem greindist með ADD fyrir rúmu ári. Dóttir hennar bíður enn eftir að komast að hjá geðheilsuteyminu. Önnur kona sagði mér frá syni sínum sem þarf aðstoð talmeinafræðings. Biðlistinn eftir aðstoð fyrir hann er tvö til fjögur ár.
Sú bið mun hafa áhrif á líðan stráksins drjúgan hluta skólagöngu hans. Enn önnur kona sagði mér frá aldraðri móður hennar sem kemst ekki á hjúkrunarheimili heldur fer reglulega inn á Landspítala en er svo send heim um leið og færi gefst. Dóttirin veitir mömmu sinni þá aðstoð sem heilbrigðiskerfið gerir ekki.
Saga þessara þriggja kvenna er spegill á stöðu heilbrigðiskerfisins. Þessi veruleiki biðlista fólksins sem þarfnast heilbrigðisþjónustu.

Það á að byggja hús, en hvað svo?

Ríkisstjórnin kynnti nýlega nokkuð það sem hún kallar heildstæða áætlun um uppbyggingu innviða í heilbrigðiskerfinu til 2030. Ofboðslega stórt nafn um að byggja nýtt hús. Allir eru sammála um að byggja þurfi nýjan Landspítala. En við þekkjum öll hvað verður um hús sem byggð eru á sandi. Það þarf pólítíska forystu og heildarsýn í heilbrigðismálum því annars mega metnaðarfullar byggingar sín lítils.

Steinsteypan ein og sér leysir ekki úr þeim alvarlega vanda að fólk sem þarf til heimilislæknis á höfuðborgarsvæðinu getur fengið næsta lausa tíma í september eða að á landsbyggðinni séu svæði sem er útlit fyrir að verði heimilislæknislaus með öllu. Húsið sjálft mun ekki heldur leysa þá stöðu að amma og afi liggi inni á Landspítala því hjúkrunarrými eru einfaldlega ekki til. Og ekki heldur leysa þá erfiðu stöðu að börn dúsa á biðlistum svo árum skiptir. Steinsteypan leysir heldur ekki málin fyrir fólkið leitar á bráðamóttöku þar sem það bíður klukkustundum saman. Og nýtt hús mun ekki breyta þeirri stöðu að starfsfólkið er örmagna.

Biðlistastjórnin

Höfuðsóttin í heilbrigðismálum hér á landi felst í því að fólkið fær ekki bót sinna meina. Ekki nema það búi yfir þeim mun meiri sannfæringarkrafti, þekki einhvern innan kerfisins eða geti borgað fyrir þjónustu í öðru landi. Með öðrum orðum fá frekir, tengdir og ríkir betri þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Sterkt heilbrigðiskerfi byggir á því að veita góða heilbrigðisþjónustu og ekki síður á því að sú þjónusta sé aðgengileg.

Góð heilbrigðisþjónusta er samspil opinberra stofnana, almannaheillasamtaka og sjálfstætt starfandi heilbrigðisfólks. Það þarf að búa vel um starfsfólk í greininni, leyfa og ýta undir fjölbreytta þjónustu og vinnustaði innan heilbrigðiskerfisins, hlúa að nýsköpun og umfram allt; veita fólkinu í landinu heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisþjónustu sem er öllum aðgengileg óháð stétt og stöðu.

Alvarleg aukaverkun þess að gera ekkert

Eftir sex ára samstarf ríkisstjórnarflokkanna þriggja er að verða ljós að heilbrigðismálin eru þeim ofviða í stefnumótun. Sú kyrrstaða hefur því miður þá alvarlegu aukaverkun að biðlistarnir bara lengjast og fólk finnur betur og betur að við erum sem þjóð að færast frá þeim grunngildum sem við viljum að gildi um aðgengilega heilbrigðisþjónustu.

Biðlistarnir eru orðnir helsta vörumerki ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum. En þetta þarf ekki að vera svona.

Umræða
Share29Tweet18
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    180 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?