Einn heppinn miðahafi var með 1. vinning í kvöld og fær rúmlega 33 milljónir króna fyrir vikið, skattfrjálst.
Lottó potturinn var þrefaldur í kvöld en miðinn var keyptur í Vestur Restaurant á Patreksfirði. Þá voru tveir með bónusvinninginn og fá rúmlega 304 þúsund krónur hvor.
Einn miðanna var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni og var hinn miðahafinn í áskrift. Þú getur gerst áskrifandi hér á lotto.is.
Umræða