• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 12. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Líkamsárás í Garðabæ vegna launauppbótar

Hnífaárás á Austurvelli

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. júlí 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lögregla hefur þennan daginn sinnt ýmsum hefðbundnum verkefnum, mörg hver tengd ölvuðum aðilum miðsvæðis í höfuðborginni. Þá var tilkynnt var um aðila sem gengi berserksgang í verslun í Breiðholti, en sá var farinn af vettvangi er lögregla kom þar að. Hafði viðkomandi valdið einhverjum skemmdum og slegið til starfsmanns.

Ekki var þá öll sagan sögð úr ríki Bakkusar, því ölvaður aðili ók aftan á strætisvagn snemma í morgun. Yfirgaf viðkomandi vettvang á fæti og gaf þá skýringu að hann vildi ekki bíða komu lögreglu þar eð hann væri undir áhrifum. Þegar málið var kannað betur kom í ljós að bifreiðinni hafði verið stolið fyrr í vikunni. Vitað er hver maðurinn er og er hans nú leitað.

Tilkynnt var um líkamsárás í Garðabæ, en þar hafði starfsmaður krafist launauppbótar í samræmi við samkomulag þar um. Að sögn starfsmannsins vildi yfirmaður hans ekki virða samkomulagið og endaði kjarabaráttan að hans sögn með því að yfirmaðurinn réðist á hann. Málið er í rannsókn.

Vinnuslys varð í Hafnarfirði í morgun, þar sem starfsmaður féll niður af vinnupalli. Ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður, en hann var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku.

Þá var tilkynnt um slagsmál á Austurvelli upp úr hádegi og að þar væri annar aðilinn með hníf á lofti. Var sá hinn sami handtekinn og vistaður í fangageymslu og fær hann að svara til saka fyrir atferli sitt er hann verður orðinn í skýrsluhæfu ástandi.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?