Öll helstu kredit- og debetkortin frá Arion banka, Íslandsbanka, Kreditkort ehf og Landsbankanum eru þarna borin saman á einum stað með óháðum samanburði.
Ólafur Örn Guðmundsson og Þórhildur Jensdóttir, mastersnemar í verkfræði og eigendur Aurbjörg.is fara hér yfir samanburð á kortunum og hægt er að smella á slóð hér að neðan sem að birtir myndrænt, framhlið og bakhlið hvers korts og sýnir svart á hvítu mun á þeim kortum sem að í boði eru á markaði í dag.
Í dag eru samtals 43 debet- og kreditkort sem standa neytendum til boða á Íslandi!
Helstu eiginleikar korta eru bornir saman, eins og: Árgjald korts (kredit- og debetkort)
Hér er þó ágætt að hafa í huga að oft er gefinn afsláttur af árgjaldi ef neytandi er í einhvers konar vild hjá kortaútgefanda eða ársvelta kortsins fer yfir ákveðið viðmið.
Ferðatryggingar (kreditkort)
Fyrir þá sem vilja hafa bílaleigutryggingu, þá fylgja þær oftast þeim kreditkortum sem eru með bestu tryggingarnar (4 stjörnur).
Punktar (kreditkort)
Frír aðgangur að betri stofu Icelandair (lounge)(kreditkort)
Fjöldi frírra færslna (debetkort)
Færslugjald (debetkort)
Fyrir hvern (debetkort)
Sum kort eru t.d. aðeins fyrir yngri fólk eða aðeins fyrir stúdenta.
Til að auðvelda samanburðinn á kortunum er hægt að raða þeim eftir mismunandi eiginleikum þeirra. Ágætt er að vera með í huga að sum kort innihalda önnur fríðindi sem eru ekki sýnd í samanburðinum. Dæmi um slík fríðindi eru flýtinnritun í flug og ókeypis langtímabílastæði við Leifsstöð, en þau fríðindi fylgja oftast dýrari kreditkortunum.
Hér er hægt að skoða mjög nákvæma greiningu sem að gerð hefur verið á vefnum Aurbjörg.is – Óháður samanburður á greiðslukortum
Núna þegar hætta á við útgáfu Amex kreditkorta spyrja Amex korthafar sig hvaða kort þeir eigi að fá sér sem veitir þeim jafn ríkuleg fríðindi og gamla kortið.
Ef kortin eru skoðuð til hlítar þá sést að tvö kort standa upp úr varðandi fríðindi:
Mastercard Premium kortið frá Kreditkort ehf.
Mastercard World Elite kortið frá Arion banka
Eins og sést í samanburðinum inná Aurbjörgu, þá er árgjaldið svipað en Premium kortið gefur 12 Icelandair vildarpunkta per 1.000 kr. veltu meðan World Elite kortið gefur 15 punkta.
Aðrir Icelandir vildarpunktar og kortastig sem Premium gefur:
30.000 Vildarpunktar þegar velta fer yfir 4.1 millj. á 12 mánaða tímabili
En Aðrir Icelandir vildarpunktar og kortastig sem World Elite gefur:
10.000 Vildarpunktar við stofnun korts (20.000 vildarpunktar ef kort er stofnað fyrir 1.mars 2018)
8.000 Saga Club Kortastig Icelandair við stofnun korts (16.000 kortastig ef kort er stofnað fyrir 1.mars 2018)
5.000 Vildarpunktar árlega við greiðslu árgjalds
6.000 Saga Club Kortastig Icelandair árlega við greiðslu árgjalds
Kortin bera álíka góðar tryggingar (World Elite er þó með hærri sjúkratryggingar) og þau bjóða bæði uppá Priority Pass.
Munur er þó á öðrum fríðindum, svo sem:
Premium korthafar: Fá aðgang að Icelandair Golfers og bílastæði við Leifsstöð í 3 daga endurgjaldslaust
World Elite korthafar: Fá vinarmiða Icelandair að uppfylltum skilyrðum og afslátt af bæði Icelandair Golfers og bílastæði við Leifsstöð.
Nánari upplýsingar er hægt að finna á Mastercard Premium síðunni hjá Kreditkort ehf. og Mastercard World Elite síðunni hjá Arion.
Aurbjörg
Aurbjörg er fjártækni (e. fintech) vefsíða sem hjálpar þér með fjármálin. Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða neytendur við ákvarðanir tengdar fjármálum.
Á vefsíðunni má finna ýmsar þjónustur tengdar sparnaðarreikningum, kortum og húsnæðislánum, eins og þjónustu til að finna hagstæðustu húsnæðislánin, endurfjármagna þau og vakta breytingar á lánakjörum. Allur samanburður er óháður.
Um okkur
Aurbjörg byrjaði sem hugarfóstur nokkurra einstaklinga sem vildu einfalda ferli notenda þegar kemur að húsnæðislánum. Í framhaldi af því tóku Ólafur Örn Guðmundsson og Þórhildur Jensdóttir, mastersnemar í verkfræði, við hugmyndinni og smíðuðu og hönnuðu Aurbjörg.is. Ýmsir fá líka þakkir fyrir óeigingjarnt vinnuframlag og aðstoð við gerð Aurbjargar.