Lögreglumenn heimsóttu 14 veitingahús í borginni í gærkvöld, þar sem kannað var með ráðstafanir varðandi sóttvarnir og tveggja metra reglu.
Átta staðir voru til fyrirmyndar eða með sín mál í mjög góðu ástandi en fimm staðir þurfa að gera úrbætur og bæta skipulagið fyrir aukna aðsókn á staðina.
Fáir gestir voru inni á þessum stöðum þegar okkur bar að garði. Væru fleiri þar inni er óvíst hvort aðstæður gætu þá talist viðunandi. Starfsmönnum þessara staða voru veittar ráðleggingar um hvernig mætti gera betur. Einn staðurinn hafði ekki gert viðunandi ráðstafanir til að tryggja sóttvarnir og tveggja metra reglu. Of margir voru þar inni á staðnum og lítið eða ekkert bil milli gesta. Skrifuð verður skýrsla á brotið.