• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 19. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjögur þyrluútköll

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. ágúst 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sinnti fjórum útköllum vegna slysa og veikinda í gær. Í fyrrinótt var áhöfnin á TF-EIR kölluð út vegna fólks sem varð strandaglópar við Blöndu eftir bílveltu. Fólkið var orðið kalt og hrakið en það var á leið frá Akureyri til Reykjavíkur um Sprengisand og Kjalveg á buggý bílum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin að hópnum laust fyrir klukkan fimm og flutti fólkið til Reykjavíkur.

Í hádeginu í gær var þyrlusveitin kölluð út til að annast sjúkraflug frá Vestmannaeyjum. Sjúkraflugvél gat ekki lent á Heimaey vegna flugbrautarframkvæmda og því var TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, send til Eyja. Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli þar sem sjúkrabíll beið og flutti sjúklinginn á Landspítalann.

Laust eftir klukkan átta í gærkvöldi var þyrlusveitin kölluð út í þriðja sinn. Göngumaður slasaðist í Móskarðshnúkum og þurfti að komast undir læknishendur. Björgunarsveitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg huguðu að manninum þar til þyrla Gæslunnar kom á staðinn og flutti til Reykjavíkur.

Á ellefta tímanum í gær var áhöfn þyrlunnar kölluð út í fjórða sinn vegna konu sem slasaðist á gönguleiðinni á Langahrygg. Björgunarsveitarmenn huguðu að konunni þar til áhöfn þyrlunnar kom á staðinn. Hún var hífð um borð í TF-EIR og flutt á Landspítalann í Fossvogi.

Johannes-Johannesson-TF-EIR-og-SjukrabillJóhannes Jóhannesson, flugmaður, stígur úr þyrlunni eftir eitt útkallið.

Sjukrabill-og-thyrlaSjúkrabíll og TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, á Reykjavíkurflugvelli.

Sjukrabill-og-TF-EIR-thyrlaAð loknu útkalli.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Uppbygging hjúkrunarheimila: Sátt milli ríkis og sveitarfélaga fest í lög

    Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Viðvörun vegna veðurs

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • ,,Af hverju í ósköpunum ættum við að rukka þig fyrir að nota peningana þína?“

    447 deilingar
    Share 179 Tweet 112
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?