Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sinnti fjórum útköllum vegna slysa og veikinda í gær. Í fyrrinótt var áhöfnin á TF-EIR kölluð út vegna fólks sem varð strandaglópar við Blöndu eftir bílveltu. Fólkið var orðið kalt og hrakið en það var á leið frá Akureyri til Reykjavíkur um Sprengisand og Kjalveg á buggý bílum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin að hópnum laust fyrir klukkan fimm og flutti fólkið til Reykjavíkur.
Í hádeginu í gær var þyrlusveitin kölluð út til að annast sjúkraflug frá Vestmannaeyjum. Sjúkraflugvél gat ekki lent á Heimaey vegna flugbrautarframkvæmda og því var TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, send til Eyja. Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli þar sem sjúkrabíll beið og flutti sjúklinginn á Landspítalann.
Laust eftir klukkan átta í gærkvöldi var þyrlusveitin kölluð út í þriðja sinn. Göngumaður slasaðist í Móskarðshnúkum og þurfti að komast undir læknishendur. Björgunarsveitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg huguðu að manninum þar til þyrla Gæslunnar kom á staðinn og flutti til Reykjavíkur.
Á ellefta tímanum í gær var áhöfn þyrlunnar kölluð út í fjórða sinn vegna konu sem slasaðist á gönguleiðinni á Langahrygg. Björgunarsveitarmenn huguðu að konunni þar til áhöfn þyrlunnar kom á staðinn. Hún var hífð um borð í TF-EIR og flutt á Landspítalann í Fossvogi.
Jóhannes Jóhannesson, flugmaður, stígur úr þyrlunni eftir eitt útkallið.
Sjúkrabíll og TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, á Reykjavíkurflugvelli.
Að loknu útkalli.