Mikilvægi þess að standa vörð um mannréttindi og lýðræði hefur aldrei verið meira en einmitt núna þegar teikn eru á lofti um að COVID-19-heimsfaraldurinn hafi stuðlað að afar neikvæðri þróun í þeim efnum og að hætta sé á vaxandi ójöfnuði í heimi hér sem geri stöðu þeirra verri sem nú þegar eiga mjög undir högg að sækja. Þetta er meðal þess sem fram kemur í sameiginlegri grein allra utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra Norðurlandanna sem birt er í dag á öllum Norðurlöndunum.
Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar undir greinina fyrir Íslands hönd en hann er ráðherra bæði utanríkismála og þróunarsamvinnu. Ráðherrarnir níu heita því í grein sinni í dag að Norðurlöndin muni leggja sitt af mörkum til að sporna við þeirri neikvæðu þróun, sem eigi sér stað í skugga COVID-19.
Norðurlöndin standa í dag einnig fyrir umræðufundi um lýðræði og mannréttindi á tímum COVID og taka utanríkisráðherrar norrænu ríkjanna þátt í fundinum en einnig Michelle Bachelet, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Marija Pejčinović Burić, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, Audrey Azoulay, framkvæmdastjóri Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), Eamon Gilmore, sérstakur fulltrúi Evrópusambandsins á sviði mannréttinda, Katarzyna Gardapkhadze, starfandi framkvæmdastjóri ODIHR (lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE), Kenneth Roth, aðalframkvæmdastjóri Human Rights Watch og Nils Muižnieks, framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu Amnesty International.
Öllum áhugasömum gefst tækifæri til að fylgjast með fundinum á netinu. Hann hefst klukkan 12:30 að íslenskum tíma og stendur til klukkan 14:00 og verður hægt að fylgjast með honum á þessari slóð. Þeir sem vilja leggja spurningar fyrir þátttakendur á fundinum sendi þær á eftirfarandi netfang: drivefordemocracy@gov.se