• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Barnaheill – Save the Children auka viðbúnað sinn í Sýrlandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. október 2019
in Erlent, Fréttir
A A
0

 

Barnaheill – Save the Children auka viðbúnað sinn í Sýrlandi og vara við að fjöldi barna á flótta aukist verulega

Barnaheill – Save the Children vöruðu í dag við yfirvofandi hörmungum í NorðausturSýrlandi, þar sem fjölskyldur og börn hafa nú þegar lagt á flótta frá átökunum. Samtökin auka nú neyðaraðstoð sína á svæðinu sem hefur verið samfleytt í gangi frá árinu 2014. Barnaheill – Save the Children sögðu: „Við höfum miklar áhyggjur af öryggi þúsunda barna og fjölskyldna þeirra sem hafa lagt á flótta í nótt. Forgangsverkefni okkar er að tryggja að hagsmunum barna sé borgið og að þau njóti þess stuðnings sem þörf er á.
Starfsfólk okkar á vettvangi vinnur sleitulaust að því að veita viðeigandi aðstoð og við erum að auka viðbúnað okkar á svæðinu til að mæta aukinni þörf.“
Starfsfólk Barnaheilla – Save the Children í Norðaustur Sýrlandi greindi frá því að sprengingar hafi heyrst alla síðastliðna nótt.
“Þó að hernaðaraðgerðirnar hafi að mestu leyti verið á landamærum, sá ég fjölskyldur leggja á flótta frá helstu bæjum í átt frá landamærasvæðunum. Fólk er hrætt og hefur ekki hugmynd um umfang hernaðaraðgerðarinnar, “ sagði Jiwan starfsmaður Barnaheilla – Save the Children í Norðaustur Sýrlandi.
“Það var hljóðlegt í þeim borgum og bæjum sem við störfum í, í morgun en andrúmsloftið er spennuþrungið því fólk veit ekki hvað gerist næst. Við vonum, barnanna vegna, að árásirnar nái ekki til annarra stórra borga,“ bætti hann við. “Fregnir hafa orðið að mannfalli, þar á meðal tveggja barna, auk þess sem fjöldi manns
hefur slasast. Íbúar í norðaustur-Sýrlandi þekkja hörmungar stríðs alltof vel.
Fjölmargir hafa lagt á flótta oftar en einu sinni. Hversu oft höfum við séð myndir af konum og börnum bera eigur sínar á bakinu í leit að öryggi? Veturinn nálgast óðfluga og það mun reynast  erfiðara fyrir þetta fólk að finna skjól. Fjölskyldur hafa áhyggjur af lífi sínu. Það kemst ekkert annað að en að koma börnum sínum í skjól,“ bætti starfsmaður Barnaheilla – Save the Children við.
Auk sýrlenskra borgara í norðausturhlutanum, eru þúsundir kvenna og barna sem búa í flóttamannabúðum víðsvegar á svæðinu. Í þremur af búðunum eru sýrlensk-íraskar fjölskyldur og 9000 erlend börn af meira en 40 þjóðernum með tengsl við ISIS sem treysta á neyðaraðstoð til að lifa af. Enn sem komið er heldur starf áfram í flóttamannabúðunum en öll röskun á neyðaraðstoð setur líf meira en 90.000 íbúa í þessum þremur búðum í hættu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Vélhjólaslys

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?