• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bóka- og bíóhátíð barnanna 2020

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. október 2020
in Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0
Bóka- og bíóhátíð barnanna 2020 var sett á föstudag – Lestur er lífsins leikur! Bækur og bíó færa okkur fróðleik, þekkingu og ævintýri!

Börnin fylgdust með opnun hátíðar á sínum heimavelli – í sínum skóla

Bækur og kvikmyndir munu leika óvenju stórt hlutverk innan leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar næstu vikuna. Bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði var sett  í fimmta sinn nú í morgun með opnunarathöfn sem send var út í beinni útsendingu til nemenda og starfsfólks. Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, fræðslustjóri Hafnarfjarðarbæjar, flutti stutt ávarp til krakkanna og setti hátíðina. Bergrún Íris Sævarsdóttir, rit- og myndhöfundur og bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2020, las uppúr nýútkominni bók sinni Töfralandið og Ragnheiður Gröndal flutti samhliða nokkur lög úr Næturdýrunum.
Menningarhátíð fyrir börn í Hafnarfirði með áherslu á bækur og kvikmyndir
Bóka- og bíóhátíð barnanna, menningarhátíð fyrir börn í Hafnarfirði, er haldin vikuna 9. – 16. október. Þessa vikuna verður sérstök áhersla lögð á bækur og kvikmyndir innan leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar og skapandi og skemmtileg verkefni sem tengjast hvoru tveggja. Tilgangur hátíðarinnar er að efla áhuga barna á lestri og læsi í víðum skilningi og styður hátíðin við læsisverkefni leik- og grunnskóla bæjarins sem í gangi hefur verið síðustu misseri. Samhliða stóð til að bjóða upp á fjölda viðburða fyrir börn og fjölskyldur þeirra á menningarstofnunum sveitarfélagsins. Þessum viðburðum hefur verið frestað í ljósi alls. Þeir verða settir á dagskrá um leið og umhverfi og aðstæður leyfa.
Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar heimsækir skólabörn bæjarins við fyrsta tækifæri
Í nóvember mun barnabókahöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir leggja upp í skólaheimsóknir og tendra lestrar- og ritlistaráhuga nemanda í grunnskólum Hafnarfjarðar. Hún mun segja frá starfi sínu og fræða börnin um það hvernig bækur verða til, frá fyrstu hugmynd að innbundinni bók sem seinna getur orðið að leikriti eða kvikmynd. Sjálf hefur Bergrún skrifað tólf barnabækur og myndlýst yfir 50 bækur auk auglýsinga, spila, plakata og tölvuleikja. Bergrún, sem er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2020, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Langelstur að eilífu og Kennarinn sem hvarf fékk bæði Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur og Fjöruverðlaunin. Þjóðargersemin Guðrún Helgadóttir hefur einmitt alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá Bergrúnu Írisi en báðar eru þær Hafnfirðingar sem sækja innblástur til heimabæjar síns. Þá mun Bergrún fræða börnin um hið fjölbreytta starf teiknarans og vonandi skilja krakkana eftir fulla af innblæstri og hugmyndum fyrir sín eigin sköpunarverk.
 Bókasafn. Mynd 1: Opnir viðburðir sem til stóð að halda verða auglýstir þegar umhverfi og aðstæður leyfa.
Krakkarnir okkar. Mynd 2: Börnin fylgdust með opnun hátíðar á sínum heimavelli – í sínum skóla

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mesta lækkun fasteignaverðs í 11 ár

    Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    785 deilingar
    Share 314 Tweet 196
  • Karlar sem fremja sjálfsvíg – Einelti, falskar ásakanir og ofbeldi

    288 deilingar
    Share 115 Tweet 72
  • Togarar á strandveiðum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    437 deilingar
    Share 175 Tweet 109
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?