EuroJackpot stefnir í að verða 9,1 milljarðar á föstudaginn þar sem potturinn gekk ekki út í kvöld. En þrír heppnir skiptu með sér 2. vinningi í EuroJackpot og hlýtur hver þeirra tæplega 140 milljónir.
Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og sá þriðji í Finnlandi. Einnig voru það þrír heppnir miðaeigendur sem skiptu með sér 3. vinningi, hver þeirra hlýtur 29.3 milljónir.
Einn miðinn var keyptur í Finnlandi en hinir tveir í Þýskalandi. Enginn var með 1. né 2. vinning í Jóker að þessu sinni.
Umræða