Maður sat látinn í þrjá daga við sjónvarpið – Konan hélt hann vera að horfa á HM
,,Það var ekki óalgengt að Reidar væri fastur yfir sjónvarpsþáttum frá föstudegi til sunnudags,“ sagði ekkjan (62).
Kona frá Drammen í Noregi, þurfti að gefa skýringar á lögreglustöðinni s.l. sunnudagsmorgun. Þar útskýrði hún hvað hefði gerst, þegar að hún fann mann sinn látinn í sjónvarpsstólnum, rétt fyrir aðra umferð, baráttunnar á HM milli Costa Rica og Serbíu.
,,Ég þurfti að fá hjálp til þess að ná í bökunarskál sem var efst uppi á ísskápnum. Ég reyndi fyrst að hrópa til hans. Þegar ég fékk ekkert svar, en ég hef aldrei fengið svar á stóru meistaramótunum, þá fór ég inn til að hrista hann, til þess að ná athygli hans en Þá féll hann bara til hliðar, sagði konan.
Hún hélt að eiginmaðurinn þóttist vera sofandi
,,Hann reynir allt til þess að laumast í burtu frá öllum heimilisstörfum, en þegar ég opnaði kaldan bjór rétt fyrir framan nefið hans án þess að fá svar, áttaði ég mig á því að ástandið var mjög alvarlegt.
Þá hringdi ég fyrst og afpantaði allar áskriftir á öllum íþróttarásum, eftir að hafa sagt þeim öllum upp, hringdi ég í neyðarnúmerið.
Læknir var sendur til hjónanna og fann það út að maðurinn hefði verið látinn, í að minnsta kosti þrjá daga í stólnum.
Lögreglan spurði konuna hvort að hún hefði ekki áttað sig á lyktinni af manninum, þá svaraði hún því til að Það hefði líklega verið í fyrsta skipti í 20 ár, að engin svitalykt hafi verið í stofunni.