• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Einn af hverjum fjórum kýs Sjálfstæðisflokkinn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. nóvember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,0%, rúmlega þremur prósentustigum hærra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í október. Fylgi Samfylkingarinnar jókst um eitt og hálft prósentustig og mældist nú 16,7% og fylgi Pírata jókst um tæpt prósentustig og mældist nú 14,3%. Þá minnkaði fylgi Miðflokksins um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 9,1%.

Þegar gögnin eru skoðuð aftur í tímann þá vekur athygli hve stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn sveiflast í gagnstæða átt við fylgi Miðflokksins. Frá því mælingar á stuðningi við Miðflokkinn hófust má sjá umtalsverða fylgni þarna á milli (r=0,6) og bendir hún til þess að nokkur barátta standi milli flokkanna um hilli sömu kjósendanna.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 51,7% og jókst um rúmt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,3%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,0% og mældist 21,9% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,7% og mældist 15,2% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 14,3% og mældist 13,5% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,9% og mældist 10,2% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 9,1% og mældist 11,6% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,4% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 7,5% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,0% og mældist 4,6% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,9% og mældist 3,8% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,1% samanlagt.

2004 2 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,0%), myndu skila auðu (4,5%), myndu ekki kjósa (2,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2004 2 Fylgi timi

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2004 2 Studningur

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 925 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 11. nóvember 2020

Umræða
Share18Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Fjöldi umsækjenda um tvö embætti skrifstofustjóra

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?