Hugleiðingar veðurfræðings
Það er áfram hvöss norðaustanátt norðvestantil á landinu og fer ekki að lægja fyrr en seinnipartinn, en annars staðar er mun hægari vindur í dag. Skúrir sunnan heiða og rigning eða slydda norðanlands, en úrkomulítið þar í kvöld nema á annesjum. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst. Suðlæg átt 5-13 m/s á morgun. Lítilsháttar rigning framan af degi og síðan þurrt að kalla, en vaxandi austanátt sunnanlands annað kvöld. Það hlýnar heldur fyrir norðan. Gengur í hvassa austanátt með rigningu á sunnudag og má búast við talsverðri úrkomu á sunnanverðu landinu.
Gul viðvörun vegna veðurs: Vestfirðir
Veðuryfirlit
500 km SA af Jan Mayen er 970 mb lægð sem fer NA og grynnist, en frá henni er lægðardrag til SV. 200 km ANA af Hvarfi er 977 mb lægð sem þokast SV.
Veðurhorfur á landinu
Hvöss norðaustanátt um landið norðvestanvert, en dregur úr vindi seinnipartinn. Mun hægari annars staðar. Allvíða skúrir, en rigning eða slydda norðan heiða og úrkomuminna þar í kvöld.
Suðlæg átt 5-13 m/s og víða dálítil rigning á morgun, en úrkomulítið síðdegis. Vaxandi austanátt og skúrir sunnanlands annað kvöld. Hiti 1 til 8 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan 3-8 m/s og skúrir í dag. Sunnan 5-13 í fyrramálið, en hægari og úrkomulítið síðdegis. Suðaustan 8-13 seint annað kvöld, hiti 3 til 7 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Gengur í austan og suðaustan 10-18 m/s, en 15-23 um landið sunnanvert. Rigning sunnan- og austantil, en annars úrkomulítið fram á kvöld. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast sunnanlands.
Á mánudag:
Suðaustan 8-15 og rigning eða skúrir, en talsverð úrkoma suðaustanlands. Hiti 3 til 8 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Austlæg átt og milt veður. Rigning með köflum, en úrkomulítið á Norðurlandi.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga eða breytilega átt. Víða rigning og áfram milt veður.