• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 16. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Enn er víða rafmagnslaust vegna óveðurs

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. desember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0
Neyðarstjórn RARIK að störfum í Reykjavík í samvinnu við landshlutabundnar vettvangsstjórnir fyrirtækisins

Hér að neðan birtast fréttir af stöðu dreifikerfisins eftir því sem tilefni verða til vegna óveðurs 10.-12. desember 2019. Auk þess upplýsum við um stöðu mála á tilkynningasíðu og á kortasjá.
Uppfært 10.12.2019 – kl. 22:12:
Enn er víða rafmagnslaust í Húnaþingi Vestra. Keyrt er á díselvélum á Raufarhöfn, Þórshöfn, Kópaskeri og Bakkafirði. Rafmagn er komið á Húsavík og vonast er til þess að það haldist. Ennþá er rafmagnslaust hluta Tjörness. Starfsmenn RARIK munu reyna að lagfæra bilanir eftir því sem veður leyfir en búast má við truflunum í alla nótt á Norðurlandi. Það sama mun svo ganga yfir Suður- og Austurland eftir því sem óveðrið færist þar yfir.
Uppfært 10.12.2019 – kl. 20:00:

Birt fyrst á vef kl. 16:27: Rafmagnstruflun er í gangi í landskerfinu frá aðveitustöð í Hrútafirði og er því rafmagnslaust hjá raforkunotendum í Hrútafirði, Miðfirði, Laugarbakka og Hvammstanga.
Uppfært kl. 20:00: Enn er rafmagnslaust á svæðinu kl. 20:00. Viðgerðarmenn hafa verið á leiðinni frá Hvammstanga á snjóbíl en ferðin hefur sóst seint vegna mikillar blindu og veðurhæðar. Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær þeir komast að aðveitustöðinni í Hrútatungu.

Uppfært 10.12.2019 – kl. 17:44:
Rafmagnslaust er í Svarfaðardal bæði að Austan- og Vestanverðu og búist er við að rafmagnsleysi vari eitthvað áfram þar sem ekki er hægt að hefja viðgerð fyrr en veður gengur eitthvað niður.
Uppfært 10.12.2019 – kl. 16:20:
Rafmagnslaust er á Sauðárkróki vegna bilunar í landskerfinu. Vinna er hafin við að koma varavélum í gang og verður rafmagn skammtað á notendum. Við biðjum alla notendur til að fara sparlega með rafmagn.
Uppfært 10.12.2019 – kl. 14:50:
Komið hefur í ljós að flutningslína Landsnets frá Laxá til Kópaskers er úti og ljóst að ekki verður hægt að gera við hana strax þar sem fjöldi staura hafa brotnað. Í ljósi þess verða díselvélar keyrðar á Kópaskeri, Raufarhöfn, Bakkafirði og Þórshöfn. Ennþá verður rafmagnslaust í Kelduhverfi og Öxarfirði. Í dreifikerfinu eru bilanir og truflanir m.a. í Svarfaðardal, á Tjörnesi ásamt Skaga og Reykjaströnd. Fólk er beðið um að spara rafmagn eins og kostur er til að komast hjá frekari skömmtunum.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 120 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sviptir góðum tekjumöguleikum

    Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    102 deilingar
    Share 41 Tweet 26
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    130 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    120 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Sam­eign þjóðarinnar – eða stærsta til­færsla auð­linda í sögu Ís­lands?

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?