Rithöfundurinn Bergljót Arnalds breytti bílnum sínum í Bókabíl. Þetta gerir hún til að koma til móts við fólk en það stefnir í miklar biðraðir í verslunum fram að jólum. Með því að panta bók hjá henni þarf viðkomandi ekki að fara í búð og bíða í röð með grímu á andlitinu heldur fær bókina senda beint heim að dyrum.
Bók beint frá höfundi á heimili
Bergljótu þykir mikilvægt að koma til móts við bæði bókina og lesendur á þennan máta á meðan Kófið gengur yfir. Svæðin þar sem höfundur mun veita þessa ókeypis heimsendingarþjónustu er höfuðborgarsvæðið og hluti af Suðurlandi s.s. Hveragerði, Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri, Þorlákshöfn og nágrenni. Aðrir sem eru ekki í bílfæri höfundar geta fengið bækurnar til sín með póstinum.
Um er að ræða barnabækur höfundar en þær hefur hann skrifað fyrir krakka sem vilja læra stafina, tölurnar, á klukku, fræðast um dýrin og margt fleira skemmtilegt.
Best er að nálgast rithöfundinn Bergljótu Arnalds með því að fara inn á spjallið á Facebook og veitir hún líka ráð varðandi hvaða bók gæti hentað hvaða aldri osfrv. en bækurnar eru fyrir börn allt frá aldrinum 2-11 ára.
Höfundurinn er þjóðþekktur og búinn að skrifa margar vinsælar barnabækur í gegnum tíðina. Þekktustu bækur höfundar eru Stafakarlarnir, Talnapúkinn og sögurnar af Gralla gormi.
Í Bókabílnum eru einnig til sölu bókin Jólasveinasaga sem fjallar um alla jólasveinana. Sú bók er uppseld hjá útgefanda og fæst aðeins í Bókabílnum sem stendur. Jólasveinasaga er fræðandi um skrítnu jólasveinafjölskylduna og er mjög vinsæl hjá börnum og jólasveinunum 🎅
„Þetta er mín leið til að koma til móts við þá sem vilja sleppa því að setja upp grímur til þess eins að nálgast bækurnar mínar. Bókabíllinn er ætlaður ungum sem öldnum en ég vona að eldriborgarar sjái sér fært að nýta þjónustuna Fylgt verður fyllstu sóttvarnarreglum við afhendingu. Finnið bara nafnið mitt á Facebook Bergljót Arnalds og sendið mér skilaboð. Þá fáið þið bókina heim að dyrum. Einfaldara getur það ekki verið 😉 Svo vona ég bara að allir eigi sem best jól miðað við aðstæður og bókin lifi með okkur áfram.“