Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir því að ná tali af þeim einstaklingum sem urðu vitni að umferðarslysi að morgni þann 09.01 síðastliðinn kl.08:27 á gatnamótum Hringbrautar og Meistaravalla.
Ekið var á barn á mótum Meistaravalla og Hringbrautar á níunda tímanum í gærmorgun. Barnið slasaðist en ekki alvarlega og var flutt á bráðamóttöku Landspítalans.
Jafnframt óskar lögregla eftir því að þeir einstaklingar sem komu ökumanni og hinum slasaða til aðstoðar á vettvangi seti sig í samband við lögregluna. Viðkomandi eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000. Einnig má senda upplýsingar í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
Umræða