• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Ráðherra fái heimild til að hækka laun kjörinna fulltrúa, umfram þær hækkanir sem kjörnir fulltrúar hafa nú þegar fengið''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. janúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Sameiginleg baráttumál með öldruðum og öryrkjum

Drífa Snædal, forseti ASÍ

,,Vikan sem nú er að líða hefur einkennst af umræðum um húsnæðismál enda styttist í að samráðsnefnd skili niðurstöðum. Húsnæðismál eru eitt stærsta kjaramálið og til mikils að vinna að ná að snúa þeirri þróun við að markaðurinn hafi það í hendi sér hversu mikið er byggt, fyrir hverja og hver kostnaðurinn af húsnæði sé. Nú nýtum við vonandi tækifærið til að laga það sem betur má fara í almenna íbúðakerfinu.
Lækkum byggingar- og vaxtakostnað og fjölgum góðum íbúðum á sæmilegu verði til að styðja við félagslegar lausnir. Þetta er eitt stærsta mannréttindamálið á Íslandi í dag. Það er löngu kominn tími til að húsnæðismarkaðurinn hirði ekki allar launahækkanir sem samið er um.
Á miðstjórnarfundi ASÍ á miðvikudaginn var töluvert rætt um stöðu eldri borgara, bæði félagslega og fjárhagslega. Í vikunni hef ég átt tvo fundi með fulltrúm samtaka þeirra. Þó margir hafi það sem betur fer ágætt á ævikvöldinu eru stórir hópar sem eru svo sannanlega ekki ofaldir á lífeyrinum sínum. Sérstaklega eru eldri borgarar á leigumarkaði í slæmri fjárhagsstöðu og allar lausnir í húsnæðismálum því mikið hagsmunamál fyrir þennan hóp. Til viðbótar má bæta við að besta kjarabótin fyrir láglaunafólk, aldraðra og öryrkja er breyting í átt að sanngjarnara skattkerfi þar sem því er markvisst beitt til að jafna kjörin. Heildarsamtök vinnandi fólks, aldraðra og öryrkja eiga þar ríka sameiginlega hagsmuni.
Að lokum get ég ekki látið hjá líða að minnast á frumvarp að lögum sem taka við af kjararáði en samkvæmt því er gert ráð fyrir því að ráðherra fái heimild til að hækka laun kjörinna fulltrúa strax í júlí á þessu ári, umfram þær hækkanir sem kjörnir fulltrúar hafa nú þegar fengið. Framúrkeyrsla kjararáðs umfram kjarasamninga frá 2015 hefur nú þegar kostað skattgreiðendur 1,3 milljarð króna. Mér dettur í hug ýmislegt sem hægt væri að gera fyrir þá peninga, til dæmis að hækka húsaleigubætur.
Samningaviðræður eru í fullum gangi og er fundað víða um borgina enda ótrúlegur fjöldi fólks sem kemur á einn eða annan hátt að samningsgerðinni. Næstu dagar og vikur munu ráða úrslitum um hvort og hvenær samningar nást. Allt hefur áhrif á þessum tímapunkti bæði til hins betra og til hins verra. Hvorki leiðaraskrif þar sem fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar er líkt við Trump né hótanir um að selja banka í ríkiseigu verða til þess að leysa kjaradeiluna, svo það sé sagt.“ Segir Drífa Snædal, forseti ASÍ

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mesta lækkun fasteignaverðs í 11 ár

    Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    786 deilingar
    Share 314 Tweet 197
  • Karlar sem fremja sjálfsvíg – Einelti, falskar ásakanir og ofbeldi

    288 deilingar
    Share 115 Tweet 72
  • Togarar á strandveiðum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    437 deilingar
    Share 175 Tweet 109
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?