• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Appelsínugul viðvörun vegna veðurs á öllu landinu – Óveðurslægðin dýpkar hratt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. febrúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Spár fyrir illviðri föstudagsins eru lítið breyttar

Nú er kalt á landinu og mest frost í nótt mældist 16,4 stig á Sandskeiði, 15,2 stig á Húsafelli, 14,1 stig á Grímsstöðum á Fjöllum og 13,7 stig í Víðidal við reiðvöll Hestamannafélagsins Fáks.
Í dag er útlit fyrir norðlæga átt og vindhraði yfirleitt innan við 10 m/s. Það má búast við dálitlum éljum á norðanverðu landinu og einnig eru stöku él á sveimi við suðurströndina. Annars staðar á landinu er ekki útlit fyrir úrkomu. Það herðir enn á frosti í kvöld. Í nótt og fyrramálið gæti 20 stiga frost eða meira mælst á einhverjum stöðum, líklegast er að það gerist inn til landsins þar sem lægðir eru í landslagi. Seint á morgun fer síðan að hvessa úr austri.
Spár fyrir illviðri föstudagsins eru lítið breyttar og verða smám saman líklegri til að rætast eftir því sem nær dregur. Þegar þetta er skrifað snemma á miðvikudagsmorgni er lægðin sem á að valda óveðrinu stödd suðvestur af Nýfundnalandi og er skýjakerfi hennar greinilegt á tunglmyndum. Óveðurslægðin fer til austurs út á Atlantshaf í dag og dýpkar ört, en á morgun tekur hún stefnu til norðurs og nálgast okkur. Búist er við að óveðrið hafi náð hámarki á Íslandi á föstudagsmorgun. Viðvaranir vegna veðursins verða uppfærðar í dag eftir því sem nýjar og nákvæmari spár berast.

Appelsínugul viðvörun vegna veðurs á öllu landinu


Veðurhorfur á landinu
Hæg austæg átt og skýjað með köflum, en dálítil él á víð og dreif. Frost, 5 til 22 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
Hægt vaxandi austanátt og þykknar upp á morgun, 13-25 m/s seint um kvöldið, hvassast og dálítil snjókoma syðst og dregur úr frosti.
Spá gerð: 12.02.2020 18:10. Gildir til: 14.02.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Austanstormur, -rok eða ofsaveður, hvassast S-lands framan af degi. Víða slydda eða snjókoma, úrkomumest SA-lands. Hlýnandi veður og fe að rigna við S- og A-ströndina undir kvöld með hita 1 til 5 stig þar, en annars vægt frost. Dregur talsvert úr vindi um kvöldið, en áfram stórhríð NV til.
Á laugardag:
Gengur í norðaustanhvassviðri eða -storm með rigningu eða slyddu, en snjókomu inn til landsins, úrkomumest A-lands. Hiti 0 til 6 stig.
Á sunnudag:
Stíf norðanátt með snjókomu N-lnads, slyddu eða rigning eystra, en annars úrkomulítið. Heldur kólnandi veður.
Á mánudag:
Norðanátt og él eða dálítil snjókoma, en bjartviðri S- og V-lands. Víða vægt frost.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir suðvestlæg átt með éljum, en léttskýjað fyrir norðan og áfram svalt í veðri.
Spá gerð: 12.02.2020 08:26. Gildir til: 19.02.2020 12:00.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Togarar á strandveiðum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?